Var 35 ára þegar sonur hennar lést – Nú er hún 92 ára og ákærð fyrir morð
92 ára kona hefur verið handtekin og ákærð fyrir morð á fimm ára syni sínum í Texas í Bandaríkjunum.
92 ára kona hefur verið handtekin og ákærð fyrir morð á fimm ára syni sínum í Texas í Bandaríkjunum. Drengurinn lést fyrir 57 árum og er konan sökuð um að hafa beitt hann alvarlegu ofbeldi árum saman áður en hann lést.
Konan, Harriet Evelyn Hall, var handtekin á þriðjudag í borginni Waco í Texas en sonur hennar, Ronald Hall, lést þann 25. nóvember árið 1969.
Í ákæru á hendur Hall kemur fram að hún sé sökuð um að hafa slegið drenginn með höndum og priki, bundið saman hendur hans og fætur og neitað honum um mat.
Í umfjöllun The Independent um málið kemur fram að lögreglan telji að Hall hafi beitt son sinn ofbeldi í fjögur ár áður en hann féll í dá og lést.
Fjölskyldan bjó á þessum tíma í Universal City, skammt frá San Antonio, en faðir drengsins var að sögn við störf á Randolph-herflugvellinum.
Bróðir Ronalds, James Randall Hall, er einnig tilgreindur sem fórnarlamb í málinu og hefur hann í gegnum árin veitt yfirvöldum upplýsingar.
Að sögn rannsóknaraðila hefur Harriet gefið misvísandi skýringar á því hvað kom fyrir son hennar. Meðal annars hefur hún haldið því fram að hann hafi slasast við fall en við önnur tækifæri sagst ekki muna hvað kom fyrir hann.
Harriet flutti síðar til Waco þar sem hún var handtekin, daginn áður en 57 ár voru liðin frá dauða sonar hennar.
Ekki liggur fyrir hvers vegna það tók yfirvöld svo langan tíma að ákæra konuna eða hvort ný sönnunargögn hafi komið fram við rannsókn málsins.
Harriet situr nú í varðhaldi en trygging fyrir lausn hennar hefur verið ákveðin 500 þúsund Bandaríkjadalir.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗