Íslenskar ofurkonur fóru saman á jólarölt og gerðu sér glaðan dag

Hverjar voru hvar?

Hrönn Margrét Magnúsdóttir framkvæmdastjóri Feel Iceland, Tinna Pétursdóttir formaður Viðskiptanefndar og eigandi Sixpensari.is og Karólína Helga Símonardóttir sem situr í stjórn bæjarstjórnar í Hafnarfirði. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Það var fjör á FKA-konum sem gerðu sér ferð í Hafnarfjörð til þess að sýna sig og sjá aðra. Hafnarfjörður er mikill jólabær og því ekki annað hægt en að komast í mikla jólastemningu í bæjarfélaginu. Veðrið var milt og gott þennan dag. 

„Konur styðja konur, versla hver við aðra, efla rekstur hver annarrar og skapa ný tækifæri. Það er einmitt það sem gefur jólaröltinu og FKA sérstöðu,“ segir Tinna Pétursdóttir eigandi Sixpensari.is og formaður Viðskiptanefndar FKA sem skipulagði jólaröltið.

Jólaröltið hófst á því að heimsækja Feel Iceland þar sem Hrönn Margrét Magnúsdóttir bauð upp á drykk og Karólína Helga Símonardóttir sem situr bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir hönd Viðreisnar tók sérstaklega vel á móti gestunum. UN Women var með sérstaka pop-up aðstöðu í litla glerhýsinu á Thorsplani og var hún heimsótt. Eitt af því sem FKA leggur áherslu á er að meðlimir félagsins versli hvor við aðra og styrki tengslanetið um lieð. 

Jólaröltinu lauk hjá Birnu Rut Viðarsdóttur veitingastjóra Fjörukrárinnar þar sem félagskonur sameinuðust í stórglæsilegum nýjum sal á Hótel Víking í mat og drykk. Lifandi tónlist og skemmtilegs happdrættis með veglegum vinningum.

Sólrún Björk Guðmundsdóttir, Hrönn Margrét Magnúsdóttir, Karólína Helga Símonardóttir, Tinna Pétursdóttir, Lilja Björg Eiríksdóttir, Sólveig Ragna Guðmundsdóttir, Ingibjörg Magnúsdóttir og Rannveig Hrönn Brink. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Svana Lovísa Kristjánsdóttir.

Svana Lovísa Kristjánsdóttir. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Inga Steinunn Björgvinsdóttir er hér fyrir miðri mynd.

Inga Steinunn Björgvinsdóttir er hér fyrir miðri mynd. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Andrea Magnúsdóttir fatahönnuður og félagskona FKA í verslun sinni AndreA að Norðurbakka Hafnarfirði. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir formaður FKA lét sig ekki vanta.

Ingibjörg Salóme Sigurðardóttir formaður FKA lét sig ekki vanta. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Oddný Sófusdóttir sviðstjóri Distica og Jóhanna Jón framkvæmdastjóri Banana.

Oddný Sófusdóttir sviðstjóri Distica og Jóhanna Jón framkvæmdastjóri Banana. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Andrea í Hafnarfirði gaf happdrættisvinninga.

Andrea í Hafnarfirði gaf happdrættisvinninga. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Heiðdís Halldórsdóttir og Ása Margrét Eiríksdóttir ásamt vinkonu.

Heiðdís Halldórsdóttir og Ása Margrét Eiríksdóttir ásamt vinkonu. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Svanbjörg Helena Jónsdóttir í nýrri verslun að Strandgötu 29 sem heitir Plóma. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Þórey Hafliðadóttir eigandi Helvítis tók fagnandi á móti sínum konum í Jólaþorpinu. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Kristín Ýr Gunnarsdóttir hjá SKÝR Ráðgjöf og Karólína Helga Símonardóttir sem situr í bæjarstjórn fyrir hönd Viðreisnar. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Leikkonurnar Linda Ásgeirsdóttir og Hrefna Hallgrímsdóttir mættu eldhressar en börn landsins þekkja þær sem Skoppu og Skrítlu. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

Andrea Róbertsdóttir framkvædastjóri FKA mætti með loðhúfu.

Andrea Róbertsdóttir framkvædastjóri FKA mætti með loðhúfu. Ljósmynd/Unnur Agnes Níelsdóttir/Spark.is

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab