Hafði áður híft níu en nú sautján
Á tveimur áratugum hjá Landhelgisgæslunni hafði Jens Þór Sigurðsson flugstjóri mest híft þrjá skipverja í einu útkalli. Á æfingu hafði hann mest…
Á tveimur áratugum hjá Landhelgisgæslunni hafði Jens Þór Sigurðsson flugstjóri mest híft þrjá skipverja í einu útkalli. Á æfingu hafði hann mest tekið níu manns um borð. Á miðvikudag hífði áhöfn hans sautján skipverja úr sjónum þegar togarinn Jökull sökk úti fyrir austurströnd Íslands. Fjórtán lifðu af en þrír létust. Þegar síðasti skipverjinn var kominn upp voru 23 í þyrlunni, að sex manna áhöfn meðtalinni.
Jens, sem er í hópi reynslumestu flugmanna Gæslunnar, lýsir björguninni í viðtali í Spursmálum. Aðeins ein þyrla var tiltæk þegar útkallið barst. Á leiðinni austur fékk áhöfnin fréttir af því að skipverjarnir væru komnir í sjóinn. Þyrlan millilenti á Hornafirði, þar sem tekið var eldsneyti með hreyflana í gangi til að spara tíma. Sæti, börur og annar laus búnaður voru skilin eftir til að létta þyrluna. Jens reiknaði með að hafa um fimmtíu mínútur á slysstað áður en halda þyrfti til Egilsstaða.
TF Gró stöðug í loftinu meðan maður er hífður um borð. Veðurlag var mun verra en á þessari mynd þegar skipverjarnir sautján voru hífðir um borð í vélina. mbl.is/Árni Sæberg
Línan við togarann rofin
Skipverjarnir höfðu allir komist í björgunargalla og bundið sig saman í hópum. Jens segir fumlaus viðbrögð þeirra hafa ráðið miklu um hvernig fór. „Það hefur bjargað þeim, það er bara ekki spurning.“
Áhöfnin hífði fyrst sjö menn úr níu manna hópi sem var nánast í flugleið þyrlunnar. Hún sneri sér síðan að sex manna hópi sem togari hafði komið línu til. Jens mat það svo að mönnunum væri betur borgið í þyrlunni. Í fjögurra til fimm metra öldu gæti verið hættulegt að ná þeim um borð í togara.
„Ég mat það á þeim tíma skynsamlegt að slíta tengingunni,“ segir Jens. Hann segir að einhverjum kunni eftir á að þykja ákvörðunin glannaleg. Matið hafi byggst á aðstæðum á sjónum og því hvernig hífingin hafði gengið. Þegar mennirnir sex voru komnir í þyrluna voru tveir úr fyrri hópnum enn í sjónum.
Íhuguðu að varpa búnaði út
Eftir því sem fleiri komu um borð jókst álagið á þyrluna. Áhöfnin velti fyrir sér hvað fleira mætti fjarlægja eftir að laus búnaður hafði verið skilinn eftir á Hornafirði. Þar kom til álita að losa rekka fyrir sjúkrabúnað.
„Það var ein hugmyndin að losa þennan rekka og losa hann bara í hafið,“ segir Jens. Þá var orðið svo þröngt um borð að erfitt hefði verið að koma rekkanum út. Að lokum tókst áhöfninni að létta þyrluna með því að brenna eldsneyti.
Tveir enn í sjónum
Þegar tveir skipverjar voru eftir var álagið á vélbúnað þyrlunnar komið að mörkum og sjálfstýringin farin að blikka. Jens tók þá ákvörðun að rjúfa hífinguna og fljúga í hring við mennina. Þannig brenndi þyrlan um 140 kílóum af eldsneyti og léttist nægilega til að áhöfnin gæti snúið aftur og híft þá upp.
Jens segir það hafa verið það síðasta sem áhöfnin vildi að skilja tvo lifandi menn eftir í sjónum í svartamyrkri og mikilli öldu. Þegar þyrlan yfirgaf slysstað voru um 480 kíló af eldsneyti eftir. Það dugði samkvæmt útreikningum áhafnarinnar til að fljúga til Egilsstaða, taka eitt aðflug og lenda þar örugglega.
Þegar síðustu hífingunni lauk gat áhöfnin kveikt á hitanum og gefið skipbrotsmönnunum að borða. Jens segir að verulega hafi verið farið að draga af þeim í sjónum. Honum hafi einnig skipt miklu að geta flutt hina látnu til lands. Á árum sínum hjá Gæslunni hafi hann margsinnis tekið þátt í leit að sjómönnum sem staðið hafi dögum saman.
„Það var gott að koma með alla heim.“
Viðtalið við Jens Þór Sigurðarson má sjá og heyra í heild sinni hér:
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗