Árásin til marks um þær ógnir sem steðja að Íslandi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir tölvuárásina sem íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984 varð fyrir í síðustu viku vera til m…
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir tölvuárásina sem íslenska vefhýsingarfyrirtækið 1984 varð fyrir í síðustu viku vera til marks um þær ógnir sem Ísland stendur frammi fyrir í netöryggismálum.
Framkvæmdastjóri 1984 telur umfang og fjármögnun árásarinnar benda sterklega til þess að erlent þjóðríki hafi staðið að baki henni.
Um var að ræða svokallaða háþróaða viðvarandi árás sem virðist hafa verið framin í þeim tilgangi að eyðileggja vefsíður til stuðnings Palestínu.
Efla greiningar- og viðbragðsgetu
Hafið þið ráðist í einhverja rannsókn á þessu máli?
„Já, CERT-IS netöryggissveitin okkar, hún hefur náttúrulega verið með vakandi augu á þessu máli og brást strax við og sem betur fer höfum við verið að taka ákvarðanir á þessu kjörtímabili um að efla og styrkja netöryggissveitina og CERT-IS,“ segir hún.
„Með því erum við að efla greiningargetu og viðbragðsgetu í þessu en þetta lýsir svolítið heiminum sem við stöndum frammi fyrir,“ segir hún og bætir við: „Við erum, eins og önnur ríki, að standa frammi fyrir netárásum, alls konar árásum, sem bæði þjóðríki en líka skipulagðir glæpahópar standa fyrir.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗