Missti lóðina eftir 14 ár án framkvæmda
Lóðinni var upphaflega úthlutað undir pylsuvagn árið 2009 en fyrirhuguð uppbygging hafði ekki hafist þegar bærinn afturkallaði úthlutunina í ágú…
Lóðinni var upphaflega úthlutað undir pylsuvagn árið 2009 en fyrirhuguð uppbygging hafði ekki hafist þegar bærinn afturkallaði úthlutunina í ágúst 2023, fjórtán árum síðar. Ljósmynd/Colourbox
Landsréttur staðfesti í gær sýknu Hafnarfjarðarbæjar af kröfum Tjarnarbúðar ehf. vegna afturköllunar á úthlutun lóðarinnar að Tjarnarvöllum 2A á Völlunum í Hafnarfirði.
Lóðinni var upphaflega úthlutað undir pylsuvagn árið 2009 en fyrirhuguð uppbygging hafði ekki hafist þegar bærinn afturkallaði úthlutunina í ágúst 2023, fjórtán árum síðar.
Tjarnarbúð krafðist þess að ákvörðun bæjarins yrði felld úr gildi en til vara að viðurkennd yrði skaðabótaskylda hans vegna þess tjóns sem félagið taldi sig hafa orðið fyrir við afturköllunina.
Félagið taldi meðal annars að bærinn hefði ekki gætt jafnræðis og meðalhófs við ákvörðun sína.
Hugðust koma á fót veitingasölu
Um er að ræða 430,6 fermetra lóð sem mun hafa orðið til við breytingu á deiliskipulagi árið 2008. Lóðinni var úthlutað til Manning ehf. árið 2009 en Tjarnarbúð tók síðar við lóðarréttindunum.
Lóðarleigusamningur var undirritaður 5. október 2013 en samkvæmt honum var lóðin leigð til 25 ára frá 1. september 2009 að telja.
Núverandi eigendur Tjarnarbúðar eignuðust félagið árið 2015. Fram kom í skýrslu fyrirsvarsmanns félagsins fyrir héraðsdómi að tilgangurinn með kaupunum hefði verið að koma á fót veitingasölu á lóðinni en forsendur til að hefja slíka starfsemi hefðu ekki verið fyrir hendi á þeim tíma.
Bréf send á fyrrverandi heimilisfang
Í lóðarleigusamningnum var kveðið á um tímamörk byggingar og frágangs lóðarinnar. Meðal annars bar lóðarhafa að leggja inn fullunna aðaluppdrætti eigi síðar en 1. maí 2014 og gera mannvirkið fokhelt fyrir 1. nóvember 2015.
Í nóvember 2017 var ákveðið að framlengja framkvæmdafresti vegna tiltekinna atvinnulóða í Hafnarfirði þar sem uppbygging hafði ekki hafist.
Samkvæmt nýjum framkvæmdaskilmálum bar Tjarnarbúð að leggja inn fullunna aðaluppdrætti eigi síðar en 4. desember 2018 og gera mannvirkið fokhelt og grófjafna lóðina fyrir 4. júní 2020.
Bréf bæjarins frá 4. júní 2018, þar sem nýju skilmálarnir voru kynntir, var hins vegar sent á fyrrverandi heimilisfang Tjarnarbúðar. Félagið kvaðst því ekki hafa fengið vitneskju um hin nýju tímamörk.
Félaginu ítrekað veittur frestur
Með bréfi 29. mars 2023 tilkynnti bærinn Tjarnarbúð að tímamörk samkvæmt hinum nýju framkvæmdaskilmálum væru liðin en framkvæmdir á lóðinni ekki hafnar.
Félaginu var veittur frestur til 28. apríl til að skila inn gögnum eða koma á framfæri andmælum eða athugasemdum. Að öðrum kosti yrði litið svo á að félagið hefði fallið frá framkvæmdaráformum sínum og lóðarúthlutunin yrði felld niður.
Bréfið var einnig sent á fyrrverandi heimilisfang félagsins og kvaðst félagið ekki hafa fengið það í hendur fyrr en 28. apríl, sama dag og fresturinn rann út.
Fresturinn var í kjölfarið framlengdur til 12. maí og síðar til 12. júlí. Engin framkvæmdaáætlun barst hins vegar frá félaginu.
Með bréfi bæjarlögmanns 24. ágúst 2023 var Tjarnarbúð tilkynnt að lóðarúthlutunin hefði verið felld niður án frekari fyrirvara. Jafnframt kom fram að endurgreitt yrði í samræmi við ákvæði laga um gatnagerðargjald.
„Bærinn vill ekki fá þessa sjoppu á þessa lóð lengur?“
Tjarnarbúð taldi að raunveruleg ástæða afturköllunarinnar væri sú að Hafnarfjarðarbær hefði breytt hugmyndum sínum um nýtingu svæðisins og gerði ekki lengur ráð fyrir veitingasölu á lóðinni.
Fyrir liggur að Hafnarfjarðarbær leigði Icelandair Group hf. aðliggjandi lóð, að Tjarnarvöllum 9, til afnota fyrir bifreiðastæði í mars 2023. Akstursleiðir inn á lóðirnar tvær liggja saman.
Bærinn hafði jafnframt látið gróðursetja tré á lóð Tjarnarbúðar og leggja göngustíg á svæðinu sem samkvæmt dómi Landsréttar liggur að hluta um lóðina.
Í tölvupósti fulltrúa Tjarnarbúðar til starfsmanns bæjarins 14. júlí 2023 sagði meðal annars:
„Bærinn vill ekki fá þessa sjoppu á þessa lóð lengur? Það væri gott að tala bara um hlutina eins og þeir eru.“
Tjarnarbúð taldi að með afturköllun lóðarúthlutunarinnar væri bærinn meðal annars að freista þess að komast hjá skaðabótaskyldu vegna ráðstafana sinna á lóðinni.
Hafnarfjarðarbær hafnaði þessum málatilbúnaði félagsins og byggði á því að sveitarfélagið gæti ekki látið það viðgangast að leigutakar sætu á lóðum árum saman án þess að hefja framkvæmdir innan tilskilinna tímamarka.
Hélt áfram að innheimta lóðargjöld
Tjarnarbúð byggði einnig á því að bærinn hefði haldið áfram að innheimta lóðargjöld af félaginu árið 2024 þrátt fyrir að lóðarúthlutunin hefði verið afturkölluð.
Félagið taldi innheimtuna hafa skapað sér réttmætar væntingar um að bærinn hefði fallið frá ákvörðun sinni.
Af hálfu bæjarins kom fram að gjöldin hefðu verið innheimt fyrir mistök og félaginu hefði verið boðin endurgreiðsla.
Héraðsdómur Reykjaness taldi ekkert í samskiptum aðila eftir afturköllun lóðarúthlutunarinnar hafa gefið félaginu tilefni til að ætla að fallið hefði verið frá ákvörðun bæjarins.
Braut gegn skyldum sínum samkvæmt samningnum
Við úrlausn málsins lagði Landsréttur til grundvallar að Tjarnarbúð hefði fengið bréf bæjarins frá 29. mars 2023 í hendur 28. apríl sama ár, líkt og félagið hélt fram.
Hins vegar lægi fyrir að félaginu hefði í kjölfarið í tvígang verið veittur frekari frestur til að bregðast við erindi bæjarins.
Félagið hefði hvorki lagt fram gögn né verkáætlun um fyrirhugaðar framkvæmdir og engar framkvæmdir hefðu farið fram á lóðinni á vegum þess.
Með því hefði félagið brotið gegn skyldum sínum samkvæmt ákvæðum lóðarleigusamningsins og bænum því verið heimilt að segja honum upp.
Aðrir lóðarhafar brugðust við
Tjarnarbúð hafði einnig byggt á því að bærinn hefði brotið gegn jafnræðisreglu stjórnsýsluréttar þar sem öðrum lóðarhöfum á svæðinu hefðu verið veittir lengri frestir þótt framkvæmdir hefðu ekki hafist á lóðum þeirra.
Landsréttur benti hins vegar á að samkvæmt framburði bæjarlögmanns hefðu öðrum lóðarhöfum verið send sambærileg bréf og þeir brugðist við með því að leggja fram framkvæmdaáætlanir og óska eftir samtali um uppbyggingu lóða sinna. Í kjölfarið hefðu framkvæmdaskilmálar þeirra verið framlengdir.
Tjarnarbúð hefði á hinn bóginn hvorki lagt fram framkvæmdaáætlun né komið á framfæri hugmyndum um uppbyggingu lóðarinnar.
„Er þá jafnframt til þess að líta að ekki hefði þurft mikið til, enda var frá upphafi áætlað að reisa söluturn á lóðinni,“ segir í dómi Landsréttar.
Greiðir rúmlega 1,6 milljónir í málskostnað
Landsréttur féllst ekki á þau sjónarmið Tjarnarbúðar að bænum hefði borið að beita vægari úrræðum, svo sem dagsektum, áður en lóðarleigusamningnum var sagt upp.
Ákvæði laga um mannvirki sem félagið vísaði til ætti ekki við í málinu enda hefði ekkert mannvirki risið á lóðinni.
Landsréttur taldi því hvorki brotið gegn jafnræðisreglu né meðalhófsreglu stjórnsýsluréttar við uppsögn lóðarleigusamningsins.
Var niðurstaða Héraðsdóms Reykjaness frá 5. nóvember í fyrra um sýknu Hafnarfjarðarbæjar af öllum kröfum Tjarnarbúðar því staðfest.
Tjarnarbúð var gert að greiða Hafnarfjarðarbæ 800 þúsund krónur í málskostnað fyrir Landsrétti og stendur jafnframt óhaggað ákvæði héraðsdóms um greiðslu 837 þúsund króna í málskostnað. Félaginu ber því samtals að greiða bænum 1.637.000 krónur í málskostnað.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗