Lætur af störfum eftir 26 ár
Hrefna B. Jónsdóttir lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands um áramót. Hún hefur gegnt starfinu frá árinu 2000
Innlent | mbl | 27.11.2026 | 21:20
Stjórn Sorpurðunar Vesturlands ásamt Hrefnu B. Jónsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra, og Hrafnhildi Tryggvadóttur, nýjum framkvæmdastjóra félagsins. Ljósmynd/Aðsend
Hrefna B. Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sorpurðunar Vesturlands, lætur af störfum um áramót eftir 26 ár í starfi. Hrafnhildur Tryggvadóttir tekur við af henni.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Hrefna sat sinn síðasta stjórnarfund hjá félaginu í Borgarnesi 23. nóvember síðastliðinn. Við það tilefni færði stjórnin henni kveðjugjöf og þakkaði henni fyrir framlag hennar til félagsins og úrgangsmála á Vesturlandi.
Sorpurðun Vesturlands er í eigu sveitarfélaganna á Vesturlandi og rekur urðunarstað í Fíflholtum á Mýrum. Þar er tekið við sorpi til urðunar af öllu Vesturlandi en starfsemin hófst fyrir aldamót.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗