Rafmagnsleysi olli tjóni hjá lyfjafyrirtæki í Hafnarfirði

Samkvæmt upplýsingum frá Coripharma hafði rafmagnsleysið meðal annars áhrif á rannsóknarstofur fyrirtækisins. Þar fer fram þróun samheitalyfja.

Coripharma er til húsa við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði.

Coripharma er til húsa við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska lyfjafyrirtækið Coripharma í Hafnarfirði varð fyrir tjóni vegna um fjögurra klukkustunda rafmagnsleysis eftir að heimtaug fór í sundur við framkvæmdir á samliggjandi lóð.

Samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum fór heimtaugin í sundur við framkvæmdir verktaka í Dalshrauni með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð í nokkrum húsum við Reykjavíkurveg, þar sem meðal annars Coripharma er til húsa. Rafmagnsleysið náði til nokkurra fyrirtækja en rafmagn var komið á að nýju hjá hluta þeirra eftir um klukkustund.

Endurtaka þarf rannsóknir

Samkvæmt upplýsingum frá Coripharma hafði rafmagnsleysið meðal annars áhrif á rannsóknarstofur fyrirtækisins. Þar fer fram þróun samheitalyfja ásamt efnagreiningu og gæðarannsóknum á hráefnum og fullunnum lyfjum. Endurtaka þarf rannsóknir og mælingar sem voru í gangi þegar rafmagnið fór af. Slíkar rannsóknir eru kostnaðarsamar og krefjast talsverðs mannafla og tíma. Umfang tjónsins hefur ekki verið metið. 

Rafmagnslaust varð einnig í starfsmannarými fyrirtækisins. Verksmiðja þess varð hins vegar ekki fyrir áhrifum af rafmagnsleysinu.

Um 230 manns starfa hjá Coripharma. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja. Fyrirtækið var stofnað árið 2018 og tók þá yfir fyrrverandi lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab