62 ára með frábæra húð þrátt fyrir fyrra líferni

„Enginn filter á húðinni minni. Þetta er ótrúlegt,“ skrifaði Courtney Love á samfélagsmiðlum.

Courtney Love hefur lifað tímana tvenna en söngkonan vakti athygli fyrir ljómandi húð sína á dögunum. Samsett mynd/Instagram

Bandaríska söngkonan Courtney Love, sem er 62 ára, vakti mikla athygli á dögunum þegar hún birti óunna sjálfsmynd á Instagram og státaði sig af ljómandi húð sinni.

„Enginn filter á húðinni minni. Þetta er ótrúlegt,“ skrifaði Love við myndina og greindi frá því að hún hefði gengist undir kóreska andlitsmeðferð sem miðar að því að gera húðina slétta, tæra og ljómandi.

Hrósunum rigndi yfir söngkonuna í athugasemdakerfinu, meðal annars frá fatahönnuðinum Marc Jacobs og fyrirsætunni Kristen McMenamy.

Ekki voru þó allir sannfærðir um að ljómann mætti eingöngu rekja til góðrar húðumhirðu og bentu sumir á mögulegar lýtaaðgerðir.

Segir lýtaaðgerð hafa breytt lífi sínu

Love, sem var gift tónlistarmanninum sáluga Kurt Cobain, hefur áður greint opinskátt frá því að hún hafi gengist undir nefaðgerð aðeins tvítug að aldri.

Í viðtali við spjallþáttastjórnandann Jimmy Kimmel árið 2014 sagðist hún hafa talið útlit nefsins standa í vegi fyrir frama sínum í kvikmyndabransanum.

„Á innan við sex mánuðum breyttist allur heimurinn,“ sagði hún um áhrif aðgerðarinnar.

Ári síðar ræddi Love um öldrun í viðtali við Harper’s Bazaar og lýsti aðdáun sinni á konum sem hefðu kosið að eldast án inngripa.

„Í mínum huga felst það að eldast með reisn í því að leyfa aldrinum að færast yfir mann og sætta sig við það. Mín reynsla er sú að baráttan gegn öldrun hefur tilhneigingu til að snúast upp í andhverfu sína.“

Love var ein skrautlegasta stjarna rokksenunnar á tíunda áratug síðustu aldar og vakti ekki síður athygli fyrir líferni sitt en tónlistina. Söngkonan hefur í gegnum tíðina rætt opinskátt um áralanga baráttu sína við áfengis- og vímuefnafíkn, meðal annars fíkn í heróín og kókaín.

Page Six

内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab