Rafmagnsleysi olli tjóni hjá lyfjafyrirtæki í Hafnarfirði
Samkvæmt upplýsingum frá Coripharma hafði rafmagnsleysið meðal annars áhrif á rannsóknarstofur fyrirtækisins. Þar fer fram þróun samheitalyfja.
Íslenska lyfjafyrirtækið Coripharma í Hafnarfirði varð fyrir tjóni vegna um fjögurra klukkustunda rafmagnsleysis eftir að heimtaug fór í sundur við framkvæmdir á samliggjandi lóð.
Samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum fór heimtaugin í sundur við framkvæmdir verktaka í Dalshrauni með þeim afleiðingum að rafmagnslaust varð í nokkrum húsum við Reykjavíkurveg, þar sem meðal annars Coripharma er til húsa. Rafmagnsleysið náði til nokkurra fyrirtækja en rafmagn var komið á að nýju hjá hluta þeirra eftir um klukkustund.
Endurtaka þarf rannsóknir
Samkvæmt upplýsingum frá Coripharma hafði rafmagnsleysið meðal annars áhrif á rannsóknarstofur fyrirtækisins. Þar fer fram þróun samheitalyfja ásamt efnagreiningu og gæðarannsóknum á hráefnum og fullunnum lyfjum. Endurtaka þarf rannsóknir og mælingar sem voru í gangi þegar rafmagnið fór af. Slíkar rannsóknir eru kostnaðarsamar og krefjast talsverðs mannafla og tíma. Umfang tjónsins hefur ekki verið metið.
Rafmagnslaust varð einnig í starfsmannarými fyrirtækisins. Verksmiðja þess varð hins vegar ekki fyrir áhrifum af rafmagnsleysinu.
Um 230 manns starfa hjá Coripharma. Fyrirtækið sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og útflutningi samheitalyfja. Fyrirtækið var stofnað árið 2018 og tók þá yfir fyrrverandi lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗