Hissa á framgöngu stjórnarmanns Visku
Formaður stéttarfélags innan vébanda Bandalags háskólamanna (BHM) segist gáttaður á því að stjórnarmaður annars félags innan BHM hafi lagt til á…
Tumi Kolbeinsson, formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins, og Eydís Inga Valsdóttir, stjórnarmaður Visku. Samsett mynd/Aðsend
Formaður stéttarfélags innan vébanda Bandalags háskólamanna (BHM) segist gáttaður á því að stjórnarmaður annars félags innan BHM hafi lagt til á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi að laun starfsmanna yrðu lækkuð.
Jónas Már Torfason og Eydís Inga Valsdóttir, bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar, lögðu fram tillögu um yfirvinnuþak í miðlægri stjórnsýslu Kópavogs. Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins í bænum felldi tillöguna og sagði hana skapa ómálefnalegan launamun milli starfsmanna í sérfræðistörfum í bænum.
Eydís Inga er stjórnarmaður í stéttarfélaginu Visku.
„Mjög andstéttarfélagslegt“
„Þetta er mjög andstéttarfélagslegt. Þarna kemur Samfylkingin, jafnaðarmannahreyfing Íslands sprottin upp úr stéttabaráttu, fram með eitthvað sem skerðir laun starfsfólks. Kópavogur er vel rekið bæjarfélag og það er engin ástæða til að fara í eitthvað svona,“ segir Tumi Kolbeinsson, formaður Félags háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins.
Tuma finnst það skjóta skökku við að sitja í stjórn stéttarfélags og leggja fram slíka tillögu.
„Stjórnarmenn fá fundargreiðslur og þess háttar, þetta eru einhverjir hundrað þúsund kallar á ársvísu úr félagssjóðum. Félagsmenn eru ekki að borga þér fyrir að tala niður launin þeirra.“
Segir Visku vera „dirty player“
Stjórnarmenn stéttarfélaga þurfa að gæta sín að mati Tuma.
„Ef þú ert í stjórn stéttarfélags þá er búið að kjósa þig til ákveðinni trúnaðarstarfa. Þú getur haft alls konar skoðanir á því hvar megi spara en maður þarf að gæta sín. Ég vinn til dæmis í Stjórnarráðinu og get ekki farið að tala gegn ráðherrum sem ég er að vinna fyrir,“ segir Tumi.
Tumi er ekki parsáttur við ákveðin vinnubrögð Visku og segist ekki vera einn um það innan BHM. Að sögn Tuma vinnur Viska markvisst að því fá félagsmenn úr öðrum félögum BHM yfir til sín.
„Þau eru „dirty player.“ Þau eru með fáa þjónustufulltrúa og gríðarlega margar starfsstéttir og það er mjög erfitt að ná sérhæfingu fyrir svo margar starfsstéttir. Þau eru með há félagsgjöld og eyða gríðarlegum peningum í auglýsingar og í að fá til sín nýtt fólk.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
