Finna sig í námi og starfi með gervigreind

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) hefur þróað nýjan gervigreindarráðgjafa sem ætlað er að hjálpa fólki á öllum aldri að finna sínar eigin…

Arnar Þorsteinsson, verkefnastjóri hjá MMS, Anna Zuchowicz, rekstarstjóri Apró, og Hera Brá Tómasdóttir hjá Apró. Ljósmynd/Anton Bjarni

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS) hefur þróað nýjan gervigreindarráðgjafa sem ætlað er að hjálpa fólki á öllum aldri að finna sínar eigin leiðir í námi og starfi. 

Gervigreindarráðgjafinn ber heitið Næsta skref AI og byggir á lokaverkefni nemenda við Háskólann í Reykjavík og var hann þróaður í samstarfi MMS, auglýsingastofunnar Konsepts og hugbúnaðarfyrirtækisins Apró. 

MMS vinnur nú að því að kynna lausnina sem hagnýtt verkfæri fyrir náms- og starfsráðgjafa og hefur fengið jákvæðar viðtökur, að því er fram kemur í tilkynningu. 

Byggir á líkani Google

Næsta skref er upplýsingavefur um nám og störf á Íslandi. Gervigreindarráðgjafinn Næsta skref AI byggir á vefnum og öðru stafrænu verkfæri, Vegvísi, þar sem notendur hafa getað spáð í eigin styrkleika og áhugasvið. Viðbót gervigreindarinnar felst í samtali. 

Lausnin byggir á Gemini-líkani Google og sækir einnig gögn til Stuðningsbanka Sambands íslenskra framhaldsskólanema (SÍF). Ráðgjafinn talar bæði íslensku og ensku og er ætlaður notendum frá 16 ára aldri. Ekki þarf að gefa upp persónuupplýsingar og lausnin vistar ekki samtöl.

„Ég hef kynnt þessa lausn fyrir náms- og starfsráðgjöfum hér á landi og viðbrögðin hafa verið afar jákvæð. Lausninni er ætlað að styðja við samtöl ráðgjafa við þeirra skjólstæðinga. Notendur fá yfirsýn og hugmyndir en ákvörðunin og ráðgjöfin verða áfram í höndum fólks af holdi og blóði. Nýlega kynntum við verkefnið í Edinborg fyrir fulltrúum nágrannaþjóða og því var mjög vel tekið,“ segir Arnar Þorsteinsson, verkefnastjóri Næsta skrefs hjá MMS.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab