Sterkur sigur Víkinga

Nýliðar Víkings úr Reykjavík unnu góðan heimasigur á Aftureldingu, 31:29, í tólftu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Safamýrinni í kvöld.

Sigurður Páll Matthíasson sækir að marki Aftureldingar.

Nýliðar Víkings úr Reykjavík unnu góðan heimasigur á Aftureldingu, 31:29, í tólftu umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í Safamýrinni í kvöld. 

Víkingur kemst upp í áttunda sæti deildarinnar með sigrinum en liðið er nú með níu stig. Afturelding er í fimmta sæti með 13. 

Afturelding var með tveggja marka forystu í hálfleik, 15:13, en seinni hálfleikurinn var mjög jafn. 

Víkingar stungu aftur á móti af undir lokin og tryggðu sér sigurinn. 

Elvar Otri Hjálmarsson, Ísak Óli Eggertsson, Jón Karl Einarsson og Þorgeir Bjarki Davíðsson skoruðu sex mörk hver fyrir Víking en Oscar Sven Leithoff Lykke skoraði níu fyrir Aftureldingu. 

Mörk Víkings: Elvar Otri Hjálmarsson 6, Ísak Óli Eggertsson 6, Jón Karl Einarsson 6, Þorgeir Bjarki Davíðsson 6, Sigurður Páll Matthíasson 5, Ásgeir Snær Vignisson 2.

Varin skot: Rökkvi Pacheco Steinunnarson 9. 

Mörk Aftureldingar: Oscar Sven Leithoff Lykke 9, Kristján Ottó Hjálmsson 5, Stefán Magni Hjartarson 5, Árni Bragi Eyjólfsson 3, Daníel Bæring Grétarsson 2, Ævar Smári Gunnarsson 2, Harri Halldórsson 1, Kristján Hrafn Kristjánsson 1, Þorvaldur Tryggvason 1.

Varin skot: Sigurjón Bragi Atlason 6, Einar Baldvin Baldvinsson 3. 

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab