Myndband sýnir mikil sjávarflóð á Flateyri og íbúar kalla eftir sjóvörnum – „Vantaði lítið upp á að færi illa í dag“
Bjarni Sveinn Benediktsson birti meðfylgjandi myndband sem sýnir mikil sjávarflóð á Flateyri á föstudagsmorgun. Sjór flæddi upp á bryggjur og á …
Bjarni Sveinn Benediktsson birti meðfylgjandi myndband sem sýnir mikil sjávarflóð á Flateyri á föstudagsmorgun. Sjór flæddi upp á bryggjur og á jörð fyrir framan Hafnastræti. Sjór fór inn í bryggjuhús og umhverfis það. Einnig flæddi sjór inn í kjallara í einu íbúðarhúsi í þorpinu.
Guðmundur Björgvinsson þekkir vel til sjávarfalla á svæðinu og segir hann að það ríði á að bregðast ágangi sjávar með sjóvarnargörðum:
„Það er brimvörn þarna niður við hafnarsvæðið sem er farin að gefa eftir. Í svona aðstæðum, 968 millibara lægð og sunnan, suðaustan rok og áhlaðandinn svakalegur og þá náttúrulega bara fer allt, allur sjór í gegnum þetta. Þetta er orðið mjög illa farið og lélegt. Og þá flæðir þarna bara á þversum yfir bátahöfnina. Og svo náttúrulega bara, já, hækkandi sjávarborð og þessi staða er slæm,“ segir Guðmundur í spjalli við DV, og bendir á annan aðkallandi vanda sem birtist í myndbandinu:
„Svo er náttúrulega annað og stærra verkefni að bryggjuhausinn sem sést þarna á myndum, að eftir að honum var breytt og hann var lengdur fram þá hefur hann sigið alveg óskaplega. Ég veit ekki hvort hann er hættur að síga en ég held að þetta sé inni á samgönguáætlun að fara eitthvað að huga að þessu því þetta er auðvitað ekki í lagi.“
Guðmundur segir myndbandið sýna að stórefla þurfi sjóvarnir á Flateyri og byggja sjóvarnargarða.
„Hafnarstjóranum er náttúrulega vel kunnugt um þetta og þetta er náttúrulega búið að vera inni hjá siglingadeildinni hjá Vegagerðinni. Og ég held að einhver hluti sko sé einhvers staðar þarna inni, væntanlega inni á samgönguáætlun, ég þori ekki að fullyrða, en það var komið inn á samgönguáætlun en bara ef að það er að dragast þá held ég að þessi staða í dag sýni okkur það að við getum eiginlega ekkert beðið lengur. Þetta er bara alvarlegt mál og vantaði bara mjög lítið á það að þetta færi illa þarna í dag og það flæddi vissulega inn í kjallarann í einu húsi í bænum í dag,“ segir Guðmundur ennfremur.
Guðmundur vill að málið verði sem fyrst tekið fyrir á bæjarstjórnarfundi á Ísafirði, en Flateyri er hluti af sveitarfélaginu Ísafjarðarbær.
„Nú verða menn að bregðast við, það er ekki hægt að bíða lengur,“ segir Guðmundur með þunga.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗