Lið Guðjóns Vals á mikilli siglingu

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach höfðu betur gegn Erlangen, 28:25, í þýsku Bundesligunni í handbolta í Gummersbach í kvöld.

Guðjón Valur Sigurðsson.

Guðjón Valur Sigurðsson. Ljósmynd/Gummersbach

Lærisveinar Guðjóns Vals Sigurðssonar í Gummersbach höfðu betur gegn Erlangen, 28:25, í þýsku Bundesligunni í handbolta í Gummersbach í kvöld. 

Þetta var fimmti sjötti sigur Gummersbach í röð í deildinni en liðið er nú með 29 stig í fjórða sæti deildarinnar, fjórum stigum á eftir toppliði Magdeburgar. Erlangen er aftur á móti með 15 stig í áttunda sæti. 

Teitur Örn Einarsson skoraði fjögur mörk fyrir Gummersbach og Garðar Ingi Sindrason eitt. Elliði Snær Viðarsson skoraði ekki. 

Hjá Erlangen skoraði Andri Már Rúnarsson eitt mark en Viggó Kristjánsson er að glíma við meiðsli. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab