Eldur í fatahreinsun
Minniháttar eldsvoði kom upp í fatahreinsuninni Hraða við Ægisíðu í Vesturbæ Reykjavíkur í morgun.
Minniháttar eldsvoði kom upp í fatahreinsuninni Hraða við Ægisíðu í Vesturbæ Reykjavíkur í morgun. Í dagbók lögreglunnar segir að búið hafi verið að ráða niðurlögum eldsins þegar lögregla kom á staðinn.
Í dagbókinni kemur fram að tilkynnt var um þjófnað í verslun og þjófnað í matvöruverslun. Í þriðja tilvikinu, sem var á verksviði lögreglu í Kópavogi og Breiðholti, reyndist þjófurinn vera með hníf meðferðis. Það var leyst með skýrslutöku á vettvangi.
Þá reyndi „óvelkominn aðili“ að komast inn á Landspítalann í Fossvogi „án þess að þurfa þjónustu heilbrigðiskerfisins“ eins og það er orðað hjá lögreglu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗