Segir fólk rugla sér saman við Sabrinu Carpenter
Amy Schumer sló á létta strengi þegar hún sýndi nýja klippingu á Instagram.
Bandaríska leikkonan og grínistinn Amy Schumer, sem er 45 ára, lét klippa á sig topp og sýndi afraksturinn í myndbandi á Instagram á dögunum.
Hún grínaðist með að fólk væri þegar farið að rugla henni saman við söngkonuna Sabrinu Carpenter.
„Nú þegar ég er komin með topp halda margir að ég sé einhver önnur, til dæmis Sabrina Carpenter,“ sagði Schumer. „Ja, eða bara trésmiður,“ bætti hún við og lék sér þar að eftirnafni söngkonunnar, en carpenter er enska orðið yfir trésmið.
Sabrina Carpenter er auðþekkt á toppnum og ljósu lokkunum en hefur enn ekki svarað gríni Schumer. AFP/Lisa O'Connor
Einn vina Schumer tók þátt í gríninu. „Nú skil ég ekkert. Ég hélt að þetta væri aðdáendasíða Sabrinu Carpenter. Mín mistök 🔥☕️,“ stóð í athugasemd við myndbandið.
Carpenter hefur undanfarin ár verið þekkt fyrir toppinn og ljósa, liðaða lokka. Hún hefur enn ekki brugðist við gríninu.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
