Barnaafmælið breyttist í martröð - Faðir lét lífið eftir að hann festist í gervihelli

Harmleikur átti sér stað þegar þriggja barna faðir lét lífið eftir að hann festist í gervihelli. Þetta sorglega atvik átti sér stað í apríl árið…

Harmleikur átti sér stað þegar þriggja barna faðir lét lífið eftir að hann festist í gervihelli. Þetta sorglega atvik átti sér stað í apríl árið 2023 en Carl O'Keeffe, 49 ára, var staddur í klifurhúsinu Kong Adventure Centre í breska bænum Keswick. Þangað var hann kominn í barnaafmæli ásamt fjölskyldu sinni en ekki fór betur en svo að hann sat í fimm klukkustundir fastur í þröngum göngum þar sem hann hlaut banvæna áverka. Göngin voru hluti af gervihellum sem eru á bak við klifurveggina á svæðinu.

Carl var enn á lífi þegar sérfræðingi tókst að losa hann úr göngunum en lést nokkrum dögum síðar á sjúkrahúsi vegna fjöllífærabilunar. Nú hefur eigendum klifurhússins verið gert að greiða 11,3 milljónir króna í sekt en dómarinn í málinu sagði að hellakerfið hefði verið illa hannað og öryggisferlum verulega ábótavant. Starfsmenn klifurhússins reyndu að koma Carl til bjargar en eina leiðin til að komast að honum var í gegnum neyðarinngang sem var læstur með hengillás og var auk þess í um sex metra hæð frá jörðu. Göngin voru sett saman með bæði boltum og lími og gat starfsfólk því ekki tekið þau í sundur. Göngin voru stórhættuleg og aðeins tímaspursmál hvenær illa færi.

Fjölskylda Carls minnist hans af mikilli hlýju. Hann var góður faðir og hafði barist fyrir réttindum skynsegin fólks. Hann var ekki hrifinn af því að láta taka af sér myndir og mátti gjarnan sjá hann með dökk sólgleraugu og barðhatt. Hann var afburðagreindur og var að sækja um doktorsnám í stjarneðlisfræði þegar hann lést.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab