Fær ekki Skódann sinn aftur – Segist þurfa hann svo aðrir geti skutlað honum

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að hafna kröfu manns um að lögregla skili honum bifreið sem lagt var hald á í októbe…

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Suðurlands um að hafna kröfu manns um að lögregla skili honum bifreið sem lagt var hald á í október. Maðurinn á að baki langan sakaferil vegna umferðarlagabrota og hefur verið sviptur ökuréttindum ævilangt.

Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á bifreið mannsins, af gerðinni Skoda Octavia, þann 19. október síðastliðinn en hann er grunaður um að hafa ekið sviptur ökurétti í fimm tilvikum á innan við þremur vikum í haust.

Þá var maðurinn stöðvaður við akstur þann 17. júlí síðastliðinn og munu amfetamín og kókaín hafa greinst í blóðsýni hans.

Ítrekað hlotið dóm

Af úrskurðinum að dæma hefur maðurinn ítrekað komið við sögu lögreglu vegna umferðarlagabrota á undanförnum árum. Hann hefur hlotið fjölmarga fangelsisdóma, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökurétti.

Fyrr á þessu ári var hann dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi og var ævilöng svipting ökuréttinda hans þá áréttuð.

Maðurinn byggði meðal annars á því að haldlagning bifreiðarinnar ylli honum gríðarlegu óhagræði. Hann hefði getað fengið vini og fjölskyldumeðlimi til að aka sér á milli staða gegn því að hann útvegaði bifreiðina.

Dómari efins um skýringar mannsins

Dómari við Héraðsdóm Suðurlands gaf lítið fyrir þessar skýringar.

„Sannast sagna er ekki sérlega trúverðug sú frásögn hans að hann fái gjarnan aðra menn til að aka bifreiðinni fyrir sig vegna þess að hann sé sjálfur sviptur ökurétti,“ segir í úrskurði héraðsdóms.

Landsréttur taldi, með hliðsjón af sakaferli mannsins og þeim brotum sem nú eru til rannsóknar, að skilyrði kynnu að vera uppfyllt til að gera bifreiðina upptæka með dómi.

Verður bifreiðin því áfram í haldi lögreglu.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab