Vilja að eigendur Manchester City verði neyddir til að selja félagið

Forráðamenn að minnsta kosti þriggja félaga í ensku úrvalsdeildinni vilja að eigendur Manchester City verði neyddir til að selja félagið vegna b…

Forráðamenn að minnsta kosti þriggja félaga í ensku úrvalsdeildinni vilja að eigendur Manchester City verði neyddir til að selja félagið vegna brota á fjármálareglum deildarinnar.

Frá þessu greinir BBC.

Manchester City var fundið sekt um umfangsmikil brot á fjármálareglum í september en félagið hefur áfrýjað niðurstöðunni og bíður enn endanlegs úrskurðar.

Óháð eftirlitsstofnun enska boltans (IFR) hefur heimild til að víkja stjórnendum félaga úr starfi og knýja fram sölu félaga í alvarlegustu tilfellunum.

David Kogan, stjórnarformaður eftirlitsstofnunarinnar, sagði fyrr í vikunni að stofnunin myndi ekki hika við að grípa til aðgerða ef tilefni væri til.

„Gleymið nafni félagsins, stærð þess og umfangi málsins. Við getum ekki hunsað lögbundnar skyldur okkar vegna þess hversu stórt félagið er,“ sagði Kogan.

Félög ensku úrvalsdeildarinnar hafa þó ekkert ákvörðunarvald í málinu.

Manchester City gæti einnig átt yfir höfði sér þungan stigafrádrátt og háar fjársektir verði áfrýjun félagsins hafnað.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab