Kveðja Færeyings til íslensku þjóðarinnar: „Við þekkjum þakklætið þegar skip kemur heim. Og við þekkjum þögnina þegar einhver kemur ekki heim“
Færeyingurinn Pól Huus Sólstein sendir kveðju til íslensku þjóðarinn vegna sjóslyssins á miðvikudag þegar Jökull ÞH299 sökk.
Færeyingurinn Pól Huus Sólstein sendir kveðju til íslensku þjóðarinn vegna sjóslyssins á miðvikudag þegar Jökull ÞH299 sökk. Með kveðju sinni birtir Pól mynd af Elvari Má Sigurðssyni, sigmanni Landhelgisgæslunnar, sem hífði 16 af 17 skipverjum Jökuls um borð í þyrluna.
„Eg eri troyttur, mega troyttur” segði Elvar Már Sigurðsson bjargari frá Tyrlu TF-GRÓ. Hann fór niður í ísakaldand sjógv eftir 17 monnum. Ein og ein. Hann var bangin og troyttur, men hann gjørdi tað. 5 metur alda, 20 metur um sek og bølandi myrkt. Hetja í saman við øllum teim sum gjørdu ikki minni enn eitt bragd."
Soleiðis sagði ein bjørgunamaðurin, sum tók allar 17 menn upp úr sjó!“
Vísar Pól til orða Elvars Más á færeysku. Segir Pól að hann hafi mikið um þessa atburði. Um sorgina, en einnig um þá siðferðilegu ákvörðun sem tekin var þegar neyðarkallið barst. Um fólkið sem lagði af stað, vitandi að engin önnur björgunarþyrla var tiltæk ef það sjálft lenti í neyð. Segir hann að í sínum huga sé eitthvað djúpt biblíulegt við þessa frásögn.
„Það merkilega við björgunaraðgerðir er að gildi mannslífsins er ekki dregið í efa. Enginn þarf að spyrja um þjóðerni, trúarbrögð, efnahag eða fortíð þess sem bjarga á. Það eitt að manneskja sé í lífshættu er næg ástæða til þess að reyna að bjarga henni.
Það þýðir auðvitað ekki að menn eigi að leggja af stað án umhugsunar. Meta þarf áhættuna, beita þekkingu og reynslu og gæta öryggis allra sem hlut eiga að máli. Björgunarfólkið á líka fjölskyldur og ástvini sem bíða þess heima.
Hugrekki og fyrirhyggja eru ekki andstæður. Aðstæður geta sett því mörk hvað við getum gert til að bjarga mannslífi. En gildi mannslífsins sjálfs er ekki háð skilyrðum.“
Segir enga mælikvarða um manneskjur hafa gilt á hafinu
Pól nefnir að okkur sé tamt að meta fólk eftir því sem það hefur áorkað, því sem það á og því sem það getur lagt af mörkum. Við eigum það jafnvel til að rugla saman gagnsemi manneskjunnar og gildi hennar.
„En þarna úti á hafinu höfðu slíkir mælikvarðar enga þýðingu. Enginn þurfti að sanna að hann væri þess verðugur að honum yrði bjargað. Það er ein dýpsta siðferðilega hugsun kristindómsins. Gildi manneskjunnar er ekki umbun fyrir verðleika hennar.“
Helgi Guðnason, stýrimaður, Bergur Stefánsson, læknir, Jens Sigurðarson, flugstjóri, Elvar Már Sigurðsson, stýrimaður, Brynhildur Ásta Bjartmarz, flugmaður, Jón Tómas Vilhjálmsson, flugvirki. Mynd/Landhelgisgæslan
Kynntist íslensku þjóðinni
Pól, hefur starfað í stjórnunarstöðu í uppsjávarútvegi, og er einnig myndlistarmaður, sem býr nú í Færeyjum. Hann bjó um tveggja ára skeið á Íslandi, segist hafa kynnst íslensku þjóðinni náið og Ísland sé því meira en nágrannaland.
„En eftir stendur sorgin. Enn í dag ber ég sterkar tilfinningar til landsins og fólksins sem þar býr. Við Færeyingar þekkjum óblíðu hafsins. Um aldir hefur hafið verið undirstaða lífs okkar, en jafnframt tekið frá okkur fólk sem okkur var kært. Við þekkjum þakklætið þegar skip kemur heim. Og við þekkjum þögnina þegar einhver kemur ekki heim.
Á bak við tölurnar þrjá og fjórtán eru manneskjur. Hver þeirra á sér sögu, ástvini, minningar og framtíð sem einhver hafði séð fyrir sér. Fyrir þá sem misst hafa ástvin verður lífið aldrei alveg eins og áður.
Við skulum fara varlega í að kalla björgun þeirra fjórtán kraftaverk, ef við gerum um leið ráð fyrir því að Guð hafi valið hverjir skyldu lifa og hverjir deyja.
Ég á ekkert guðfræðilegt svar við þeirri spurningu hvers vegna fjórtán lifðu af en þrír létust. Og ég vil ekki reyna að finna slíkt svar á kostnað þeirra sem syrgja.
Björgun fjórtán mannslífa er ástæða til djúps þakklætis. En hún er ekki huggun sem við getum ætlast til að þeir sem misst hafa ástvin finni. Sorgin og þakklætið verða að fá að vera til hlið við hlið.“
„Maðurinn er að mörgu leyti ráðgáta“
Pól er trúarlegur í færslu sinni og vitnar í Jóhannesarguðspjall, Krist og mannlega hegðun. Hann segist ekki vita á hvað björgunaraðilar trúa, enda skipta það ekki máli í þessu samhengi. Segir hann boðskap guðspjallanna geta birst í verkum manna án þess að þeir mæli trúarleg orð.
„Á miðvikudagskvöld þurfti fólkið ekki einu sinni að þekkjast. Maðurinn er að mörgu leyti ráðgáta. Sjálfsbjargarviðleitnin er ein sterkasta hvöt okkar. Við óttumst dauðann og reynum að vernda eigið líf. Samt búum við yfir þeim eiginleika að geta tekið áhættu vegna þess að líf annarrar manneskju er í hættu. Það er ekki sjálfsagt. Við getum útskýrt margt í mannlegri hegðun með eiginhagsmunum, metnaði og löngun eftir viðurkenningu. En slíkar skýringar ná ekki utan um allt það sem býr í manninum.
Í gegnum aldirnar hafa konungar og valdhafar krafist þess að aðrir fórni lífi sínu í þeirra þágu. Kristur kom með annan skilning á mannlegri mikilleik: að þjóna öðrum fremur en að láta þjóna sér. Þar liggur grundvallarmunur á tvenns konar skilningi á valdi og mannlegri reisn.“
Finnst þjóðsöngur Íslendinga merkilegur
Pól segir orð Matthíasar Jochumssonar í þjóðsöngi koma upp í huga hans og segir að honum hafi alltaf þótt merkilegt að þjóð skuli í þjóðsöng sínum ekki fyrst og fremst syngja um sigra, vald eða eigin mikilleik, heldur um eilífðina og hverfulleika tilverunnar. Jafnvel þúsund ára saga þjóðar verður lítil í ljósi eilífðarinnar.
„Í mynd Matthíasar af hinu smáa blómi eilífðarinnar felst djúp vitund um kjör mannsins. Við erum hér um stund, elskum, vonum, trúum og syrgjum, án þess að hafa vald yfir því hversu lengi okkur er gefið að lifa. Það að mannslífið sé forgengilegt gerir það ekki síður dýrmætt. Og það að það sé óbætanlegt gerir það ekki síður forgengilegt.
Við getum ekki sigrað dauðleikann. En við getum barist fyrir lífi hverrar manneskju. Það gerði fólkið sem lagði af stað á miðvikudagskvöld.
Hugur minn er hjá íslensku þjóðinni. Hjá þeim sem komust lífs af, hjá fjölskyldum þeirra sem létust og hjá öllum þeim sem nú eiga um sárt að binda. Og með djúpri virðingu og þakklæti hugsa ég til þeirra sem lögðu af stað út í myrkrið.
Í dag hljóma síðustu orð fyrsta erindis íslenska þjóðsöngsins í huga mér sem hljóðlát bæn:
Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár
sem tilbiður Guð sinn og deyr.
Með innilegri samúð og hlýjum hug frá Færeyjum.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗