Skipstjórinn flaggar í hálfa stöng

Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjóri á Jökli ÞH sem fórst á miðvikudaginn, ætlar að flagga í hálfa stöng við heimili sitt næstu þrjá dagana og…

Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjóri á Jökli ÞH.

Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjóri á Jökli ÞH. Ljósmynd/Facebook

Kristinn Hrannar Hjaltason, skipstjóri á Jökli ÞH sem fórst á miðvikudaginn, ætlar að flagga í hálfa stöng við heimili sitt næstu þrjá dagana og þrjár næturnar til minningar um þá þrjá skipverja sem létust í slysinu. 

Í færslu á Facebook-síðu sinni segist Kristinn Hrannar ekki hafa viljað tala við fjölmiðla frá því að slysið varð en segir söguna skipta máli og að hún verði sögð.

Þá þakkar hann jafnframt áhöfn TF-Gró, þyrlu Landhelgisgæslunnar, og slysavarnarskóla sjómanna fyrir lífsbjörgina. 

Eggert Ellertsson, Jacek Belina og Aðalsteinn Steinþórsson létust þegar skipið fórst. Sautján skipverjar voru um borð þegar skipið sökk, en fjórtán var bjargað. Skipstjórinn vottar fjölskyldu þeirra virðingu sína og samúð. 

Kristinn Hrannar segir áhöfnina hafa staðið sig rosalega við erfiðar aðstæður. Áhöfnin hafi unnið vel saman og gert allt rétt, það sé ástæðan fyrir því að svo margir hafi lifað af.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab