Guðni Th. hughreysti skipverja
Kyrrðarstund var haldin í Fossvogskirkju síðdegis í dag þar sem hluti áhafnar Jökuls ÞH var saman kominn.
Kyrrðarstund var haldin í Fossvogskirkju síðdegis í dag þar sem hluti áhafnar Jökuls ÞH var saman kominn.
Meðal þeirra sem sóttu stundina var Guðni Th. Jóhannesson, fyrrverandi forseti Íslands, sem gaf sig að skipverjum og hughreysti þá.
Meðal annars ræddi hann við hinn 18 ára Ágúst Elí Gerðarson, sem ræddi við fjölmiðla í dag. Guðni tók einnig í hönd ættingja og kastaði kveðju á þá sem sátu fjær ganginum á kirkjubekkjum.
Á kyrrðarstundinni komu meðal annars saman aðstandendur og fyrrverandi samstarfsmenn skipverja sem þekktu þá sem lentu í skipskaðanum.
Öllum viðstöddum var boðið að kveikja á kertum til minningar um þá Eggert Ellertsson, Aðalstein Steinþórsson og Jacek Belina, sem fórust í sjóslysinu.
Meðal þeirra sem kveiktu á kertum um minningar um þá sem fórust voru núverandi og fyrrverandi skipverjar á Jökli ÞH. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
