Fimm réttir sem buddan þín mun elska

Til eru réttir sem eru einfaldir, góðir og alls ekki svo dýrir í innkaupum. Samsett mynd

Það er ákveðin list að kunna að fara vel með peninga, láta daglegt líf ganga upp og leggja örlítið til hliðar þegar færi gefst. Í eldhúsinu felast mörg tækifæri til þess, enda má elda bæði fágaðan og bragðgóðan mat úr einföldu hráefni og láta hann duga í fleiri en eina máltíð.

Hagsýni þarf ekki að draga úr ánægjunni við matarborðið. Góður matur, falleg framsetning og nægur tími til að njóta geta gert hversdagskvöld að lítilli veislu. Hér eru fimm réttir sem gott er að kunna að elda þegar við viljum passa upp á fjárhaginn og eiga svolítið afgangs fyrir komandi veisluhöld og gleði.

Skakki kjöthleifurinn hennar Hönnu

Hver elskar ekki góðan kjöthleif? Ljósmynd/Aðsend

Kjöthleifur, eða svikinn héri, er sígildur heimilismatur sem auðvelt er að gera að fallegri máltíð. Hanna Thordarson sækir þessa uppskrift til móður sinnar og sýnir að framsetningin getur gefið kunnuglegum rétti nýjan svip.

Kúrbítur og ostur að ítölskum hætti

Hversu fallegur er þessi réttur? Ljósmynd/Aðsend

Spaghetti alla Nerano er meðal uppáhaldsrétta Valerios Gargiulo. Þar koma kúrbítur, ostur, basilíka og pasta saman í rétti sem minnir mann á sumrin við sjóinn á Suður-Ítalíu. Gott dæmi um hversu langt má komast með fáum hráefnum.

Mexíkósk súpa með ríkulegu grænmeti

Þessi mexíkósúpa er algjört sælgæti.

Þessi mexíkósúpa er algjört sælgæti. Ljósmynd/Aðsend

Grænmetisútgáfan af mexíkóskri súpu af síðunni Gott og einfalt er litríkur og matarmikill kostur. Sætar kartöflur, gulrætur og paprika eru meðal hráefnanna og uppskriftin hentar vel þegar löngunin stendur til að elda eitthvað hlýlegt og einfalt.

Uppáhaldspasta Audrey Hepburn

Audrey Hepburn var séð þegar kom að matargerð og kostnaði.

Audrey Hepburn var séð þegar kom að matargerð og kostnaði. Sara Groblechner/Unsplash

Spagettí með tómatsósu getur verið sannkölluð veislumáltíð. Í uppskriftinni úr bókinni Audrey heima mynda laukur, hvítlaukur, gulrætur og sellerí grunn að sósu með tómötum og basilíku. Sósan fær að malla rólega áður en pastað er borið fram með nýrifnum parmesanosti.

Steiktur fiskur með heimagerðu remúlaði

Það elska allir steiktan fisk!

Það elska allir steiktan fisk! Ljósmynd/Aðsend

Stundum þarf lítið annað en vel steiktan fisk, soðnar kartöflur og gott meðlæti. Marta María Arnarsdóttir, skólameistari Hússtjórnarskólans í Reykjavík, heldur upp á þennan klassíska rétt þar sem kryddaður raspur og heimagert remúlaði gefa fiskinum góðan félagsskap.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅