Var skotinn til bana um síðustu helgi þegar hann reyndi að hjálpa ölvuðum manni
Enska knattspyrnumaðurinn Krissh Mahatma var skotinn til bana í Jackson í Mississippi í Bandaríkjunum á sunnudag. Hann var aðeins 18 ára gamall.
Enska knattspyrnumaðurinn Krissh Mahatma var skotinn til bana í Jackson í Mississippi í Bandaríkjunum á sunnudag. Hann var aðeins 18 ára gamall.
Mahatma, sem var frá Vestur-London, hafði haldið til Bandaríkjanna á námsstyrk til að stunda nám og spila knattspyrnu með liði Copiah-Lincoln Community College.
Samkvæmt vitnum sem ræddu við bandaríska miðilinn Dark Horse Press voru Mahatma og nokkrir liðsfélagar hans að yfirgefa veitingastað þegar þeir komu auga á ölvaðan mann.
Þeir buðust til að skutla manninum heim en í kjölfarið kom upp ágreiningur sem endaði með því að maðurinn er sagður hafa skotið á hópinn.
Mahatma var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn. Lögregla handtók 22 ára gamlan mann á þriðjudag sem hefur verið ákærður fyrir morð.
Áður en Mahatma hélt til Bandaríkjanna lék hann með ungmennaliði Watford. Hann hafði leikið fjórtán leiki með háskólaliði sínu á tímabilinu, skorað eitt mark og lagt upp annað.
„Krissh verður sárt saknað af liðsfélögum sínum og öllu skólasamfélaginu. Hugur okkar er hjá fjölskyldu hans, vinum og öllum sem þótti vænt um hann,“ sagði Dewayne Middleton, forseti skólans.
Efnt hefur verið til söfnunar fyrir fjölskyldu Mahatma en þegar hafa safnast yfir 42 þúsund Bandaríkjadalir.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗