„Við höfum heyrt alls konar sögur“
„Ég er í þessari upplýsingaöflun meðal annars,“ segir hann enn fremur, en tekur þó fram að rannsóknin sé á frumstigi.
Við rannsókn á sjóslysinu sem varð austur af landinu í fyrrakvöld, þegar Jökull ÞH 299 fórst, verða væntanlega skoðuð líkindi með því þegar systurskipið fórst í Barentshafi árið 2004, sem og öðrum sambærilegum slysum.
Þetta segir Jón Pétursson, rannsóknarstjóri á siglingasviði rannsóknarnefndar samgönguslysa, í samtali við mbl.is.
Fram hefur komið að brotin netalúga á Jökli hafi gert það að verkum að sjór fór óhindrað inn um stjórnborða skipsins, sem varð til þess að það hvarf í sæ á 19 mínútum. Myndband sem sýnir sjó flæða inn í skipið hefur gengið um samfélagsmiðla.
Bæði skipin smíðuð í Noregi
Systurskipið sem er vísað til er rússneska fiskiskipið Malakhit, sem fórst í Barentshafi árið 2004 eftir að sjór flæddi inn í skipið í óveðri, með þeim afleiðingum að það fékk á sig mikla slagsíðu. Bæði skipin voru smíðuð í Noregi á svipuðum tíma.
„Við höfum heyrt alls konar sögur,“ segir Jón í samtali við mbl.is spurður út í líkindi með sjóslysunum tveimur, en það vill svo til að hann er staddur í Noregi fyrir tilviljun. „Ég er í þessari upplýsingaöflun meðal annars,“ segir hann enn fremur, en tekur þó fram að rannsóknin sé á frumstigi.
„Venjan er sú hjá okkur að við skoðum sambærileg og svipuð tilfelli þegar eitthvað gerist,“ segir Jón og bendir á að nefndin hafi aðgang að gagnagrunnum þar sem slík slys séu skráð.
Rakið til galla og veðurskilyrða
Þá hefur einnig verið bent á möguleg líkindi með sjóslysinu í fyrradag og því þegar færeyska línuskipið Kambur fórst í febrúar árið 2024.
Var það slys rakið til samspils hönnunargalla og erfiðra veðurskilyrða. Sjór flæddi inn í skipið eftir að það fékk á sig brotsjó.
Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni sökk Jökull aðeins 19 mínútum eftir að neyðarkall barst frá skipstjóra. Netalúga hafði gefið sig með þeim afleiðingum að sjór flæddi óhindrað inn í skipið, sem varð til Jökull fórst um 100 kílómetra austur af landinu.
Þrír skipverjar létust en 14 var bjargað.
Kunnugur slysinu við Færeyjar
Jón átti fyrir fram bókaðan fund í Noregi og ákvað að nýta ferðina til upplýsingaöflunar vegna sjóslyssins, en Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996.
Spurður hvort nefndin muni kalla eftir gögnum vegna slyssins þegar Malakhit fórst segir Jón:
„Væntanlega skoðum við alla svoleiðis hluti, já.“
Jón kveðst kunnugur slysinu við Færeyjar og hefur lesið þá skýrslu en vill á þessu stigi ekkert fullyrða um möguleg líkindi slysanna.
„Ég get eiginlega svo lítið tjáð mig um svona hluti á þessu stigi,“ segir hann og áréttar að rannsóknin sé rétt að hefjast.
Þá segir hann ljóst að rannsóknin muni taka tíma.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
