Kjartan Logi: „Gervigreindin verður aðeins að chilla“

Skemmtikrafturinn Kjartan Logi spyr hvort fólk sé farið að fela gervigreind of mikið af daglegu lífi sínu. Í 60.

Skemmtikrafturinn Kjartan Logi spyr hvort fólk sé farið að fela gervigreind of mikið af daglegu lífi sínu. Í 60. þætti Gervigreindarklúbbsins ræðir hann við Stefán Atla Rúnarsson um mannlega sköpun, prófar brandara frá ChatGPT og segir frá álaginu sem fylgdi því að birta nýjan skets á hverjum degi í hundrað daga.

„Getum við ekki bara stoppað aðeins?“ spyr Kjartan þegar samtalið berst að hraða tækniþróunarinnar. Hann veltir fyrir sér hvað tapist þegar fólk velur sífellt auðveldustu leiðina og felur tækninni verkefni sem það gæti sinnt sjálft. Að fara út úr húsi, hitta fólk og hafa eitthvað fyrir stafni skipti máli, jafnvel þótt það sé hægt að láta tæknina spara sér sporin.

ChatGPT sett í brandarapróf

Í þættinum fær ChatGPT það verkefni að semja brandara fyrir árshátíð með hundrað gestum. Stefán les upp tillögurnar og Kjartan metur útkomuna. Hún vekur takmarkaða hrifningu og Kjartan líkir bröndurunum við það sem mætti heyra frá einhverjum frænda.

Hann telur veislustjórn snúast um mun meira en að hafa nokkra brandara á blaði. Veislustjórinn þurfi að finna stemninguna, skilja salinn og geta breytt dagskránni eftir því sem kvöldinu vindur fram.

„Þú finnur væpið í herberginu,“ segir Kjartan. Hann segist enn ekki hafa séð gervigreind sem geti samið almennilega brandara fyrir svið, en sé tilbúinn að láta sýna sér annað.

 

Hundrað dagar af sketsum tóku sinn toll

Kjartan lýsir því hvernig hann og kærasta hans, Íris, vinna hugmyndir að sketsum saman. Þau ræða saman, skiptast á hugmyndum, skrifa handrit og taka upp. Þegar hugmyndirnar vantar leitar hann meðal annars í fréttir og það sem er að gerast í samfélaginu.

„Ég er með kærustunni Írisi og við spjöllum saman, manneskja og manneskja,“ segir hann um handritavinnuna.

Eftir að sketsarnir fóru að ganga vel ákváðu þau að birta nýtt myndband á hverjum degi. Það varð að hundrað daga samfelldri lotu. Að skrifa, taka upp og klippa daglega reyndist sífellt erfiðara og Kjartan segir tímabilið hafa endað í því sem hann lýsir sem kulnun. Nú birti hann efni sjaldnar.

 

Sér gagn í læknarannsóknum

Afstaða Kjartans til gervigreindar fer eftir því í hvað hún er notuð. Hann segist stundum nýta Gemini til að finna upplýsingar og sér gildi í því að gervigreind geti hjálpað vísindafólki við rannsóknir á sjúkdómum. Hann er hins vegar gagnrýninn á notkun hennar í listsköpun og vill áfram þróa sínar hugmyndir í samtali við annað fólk.

Í viðtalinu veltir hann einnig upp hvort börn og ungmenni þurfi að læra sjálfstæða upplýsingaleit áður en þau fari að treysta á gervigreind. Þá ræða þeir Stefán hvað gerðist ef einhver byggi til gervigreindareftirlíkingu af Kjartani og léti hana keppa við hann um áhorf á samfélagsmiðlum. Sú hugmynd vekur hjá honum spurningar um samþykki og mörk tækninnar.

Gervigreindarklúbburinn hefur nú þegar gefið út 60 þætti og fengið til sín fjölbreytta gesti úr atvinnulífi, stjórnmálum, lögfræði, listum, tæknigeiranum og nýsköpun. Meðal gesta sem hafa komið í þáttinn eru til dæmis Arnar Þór Jónsson, Einar Þorsteinsson, Ingibjörg Isaksen, Ingi Bauer, Jónas Sig, Bergur Ebbi, KK, Þormóður Eiríksson og fleiri áhugaverðir einstaklingar sem hafa rætt áhrif gervigreindar frá ólíkum sjónarhornum.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab