Stórleikur fram undan í átta liða úrslitum
Dregið var í 8-liða úrslit bikarkeppninnar í blaki í höfuðstöðvum Kjöríss í Hveragerði í dag.
Dregið var í 8-liða úrslit bikarkeppninnar í blaki í höfuðstöðvum Kjöríss í Hveragerði í dag.
Ljóst er hvaða lið mætast í baráttunni um sæti í undanúrslitum en stórleikur átta liða úrslita kvenna verður fyrir norðan þegar KA tekur á móti HK. Liðin mættust í úrslitaleik síðustu bikarkeppni þar sem HK hafði betur og tryggði sér bikarmeistaratitilinn.
Afturelding fær HK-Ými í heimsókn og Völsungur tekur á móti sameiginlegu liði Þróttar Reykjavíkur og Blakfélags Hafnarfjarðar.
Þá mætir sigurliðið úr leik Aftureldingar 270-365 og HK-A annaðhvort Þrótti Fjarðabyggð.
Sá leikur er sá eini sem eftir er í 1. umferð bikarkeppninnar og fer fram 4. desember.
Bikarmeistararnir sitja hjá karlamegin
Sjö lið eru skráð til leiks í karlaflokki og sitja bikarmeistarar Hamars því hjá í 8-liða úrslitunum.
Afturelding tekur á móti KA, HK sækir Vestra heim og Þróttur Fjarðabyggð fær Þrótt Reykjavík í heimsókn.
Leikir 8-liða úrslitanna fara fram á tímabilinu 22. janúar til 10. febrúar. Úrslitahelgi bikarkeppninnar fer síðan fram í Digranesi dagana 18. til 20. mars.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗