Kerfi borgarinnar í gang í dag og um helgina
Stefnt er að því flest rafrænt þjónustukerfi Reykjavíkurborgar verði komin í gagnið í dag og um helgina en kerfin hafa mörg hver legið niðri frá…
Stefnt er að því flest rafrænt þjónustukerfi Reykjavíkurborgar verði komin í gagnið í dag og um helgina en kerfin hafa mörg hver legið niðri frá því að netárás var gerð á hluta tölvukerfa borgarinnar á miðvikudag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Borgin segir kjarnakerfi og önnur mikilvæg kerfi vera í forgangi sem stendur svo unnt sé að draga úr áhrifum röskunarinnar á íbúa og starfsfólk. Seinustu kerfin gætu farið í gang strax eftir helgi.
Skipt um öll lykilorð
Ekki liggur fyrir hver stóð að árásinni né hver tilgangur hennar var. Engin krafa hefur verið gerð um lausnargjald.
Borgin tók þjónustukerfin tímabundið úr sambandi til að hefta útbreiðslu árásarinnar og verja kerfi og gögn. Starfsmenn borgarinnar vinna nú að því í samstarfi við sérfræðinga Syndis og netöryggissveitina CERT-IS að yfirfara kerfin og tryggja að óhætt sé að taka þau í notkun að nýju.
Vinnan felur meðal annars í sér að skipta um öll lykilorð og aðgangslykla í viðkomandi kerfum.
Unnið er að því að greina hvernig árásaraðilarnir komust inn í kerfin og hvaða gögn þeir kunna að hafa nálgast en borgin mun birta frekari upplýsingar eftir því sem staðan skýrist.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗