Ólína Þorvarðardóttir ráðin rektor
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir hefur verið ráðin rektor skólans til frambúðar.
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, settur rektor við Háskólann á Bifröst, hefur verið ráðin rektor skólans til frambúðar. Ólína var staðgengill rektors þegar hún tók við starfinu í febrúar síðastliðnum þegar Margrét Jónsdóttir Njarðvík lét af störfum. Var Ólína þá sett tímabundið til áramóta.
Ólína hefur verið prófessor og gegnt stöðu deildarforseta félagsvísindadeildar Háskólans á Bifröst frá 2022. Hún er doktor í íslenskum bókmenntum og þjóðfræðum og hefur birt fjölda fræðigreina, bókarkafla og bóka. Hún hefur áralanga reynslu af háskólakennslu, rannsóknum og akademískri stjórnun. Starfsferil sinn hóf Ólína á fjölmiðlum sem blaðamaður, ritstjóri og um skeið sjónvarpsfréttamaður á Ríkisútvarpinu á níunda áratugnum.
Hún var áður borgarfulltrúi og alþingismaður og hefur samhliða öðrum störfum gefið út níu bækur.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/63/15/1631584.jpg)