Anna jafnaði sinn besta árangur
Anna Kamilla Hlynsdóttir jafnaði sinn besta árangur í heimsbikarnum á snjóbretti þegar hún hafnaði í 17. sæti af 30 keppendum í undankeppni í Bi…
Íþróttir | mbl | 27.11.2026 | 17:10
Anna Kamilla Hlynsdóttir jafnaði sinn besta árangur í heimsbikarnum á snjóbretti þegar hún hafnaði í 17. sæti af 30 keppendum í undankeppni í Big Air í Innsbruck í Austurríki í gær.
Þetta var fyrsta heimsbikarmót Önnu Kamillu á tímabilinu. Samkvæmt Skíðasambandi Íslands er hún að jafna sig eftir meiðsli og hefur lítið getað æft á snjó undanfarið. Hún varð einnig í 17. sæti í Secret Garden í Kína í nóvember í fyrra og stefnir næst á heimsbikarmót í Peking 4.–5. desember.
Matthías Kristinsson hafnaði á sama tíma í 48. sæti af 102 keppendum í svigi í Evrópubikarnum í Suomu í Finnlandi. Hann lauk báðum ferðum í gær eftir að hafa fallið úr keppni í fyrri ferð á miðvikudag. Aðeins 55 keppendur luku báðum ferðum í gær.
Þetta var fjórða Evrópubikarmót Matthíasar og í annað sinn sem hann lauk keppni í mótaröðinni. Besti árangur hans er 45. sæti í Obereggen á Ítalíu í fyrra. Jón Erik Sigurðsson þreytti frumraun sína í Evrópubikarnum í Suomu en lauk ekki fyrri ferðinni hvorugan daginn.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗