Sviptur ökuréttindum eftir að hjólreiðamaður myndaði hann
Sven Botman, varnarmaður Newcastle United, hefur verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði eftir að hafa verið staðinn að því að nota farsíma undi…
Sven Botman, varnarmaður Newcastle United, hefur verið sviptur ökuréttindum í sex mánuði eftir að hafa verið staðinn að því að nota farsíma undir stýri.
Hjólreiðamaður tók myndband af hollenska varnarmanninum þar sem hann hélt á símanum með báðum höndum í Range Rover-bifreið sinni í umferðarteppu í Newcastle.
Atvikið átti sér stað í september á síðasta ári en hjólreiðamaðurinn sendi myndbandið til lögreglu.
Botman játaði að lokum brot sitt en hann var þegar með níu refsipunkta á ökuferilsskrá sinni. Hann fékk sex punkta til viðbótar og var í kjölfarið sviptur ökuréttindum.
Lögmaður Botman benti á við réttarhöldin að bifreiðin hefði verið kyrrstæð þegar atvikið átti sér stað.
Botman var einnig gert að greiða samtals 1.660 pund í sekt og málskostnað.
Hollendingurinn, sem er 26 ára gamall, gekk til liðs við Newcastle frá franska félaginu Lille árið 2022 og hefur verið mikilvægur leikmaður í varnarlínu liðsins undir stjórn Eddie Howe.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗