Fær ekki afhentan tölvupóst frá sendiherra Íslands um fund með Tony Blair
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur staðfest synjun utanríkisráðuneytisins um beiðni ónefnds blaðamanns um afhendingu tölvupósts frá sendiráði…
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefur staðfest synjun utanríkisráðuneytisins um beiðni ónefnds blaðamanns um afhendingu tölvupósts frá sendiráði Íslands í Bretlandi, sem ritaður var af þáverandi sendiherra, til utanríkisráðherra og nokkurra starfsmanna ráðuneytisins. Tölvupósturinn snerist um fund fulltrúa ríkja Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna með Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands.
Um var að ræða fund með Blair á vegum hins svokallaða NB8-samstarfs sem er óformlegur svæðisbundinn samstarfsvettvangur Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna þriggja. Meginmarkmið samstarfsins er að efla samvinnu og skapa vettvang til samstarfs og samráðs ríkjanna á sviði utanríkismála.
Fundurinn fór fram 25. febrúar síðastliðinn en daginn eftir var sendur tölvupóstur um fundinn frá sendiráði Íslands í London til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra auk skrifstofustjóra skrifstofu alþjóðapólitískra málefna og þriggja annarra starfsmanna utanríkisráðuneytisins.
Ráðuneytið neitaði að afhenda blaðamanninum tölvupóstinn á þeim grundvelli að um væri að ræða vinnugagn og þar að auki póst um samskipti Íslands við önnur ríki. Þar af leiðandi væri heimilt samkvæmt upplýsingalögum að meina blaðamanninum um aðgang að póstinum.
Í umsögn ráðuneytisins til úrskurðarnefndar um upplýsingamál, vegna kæru blaðamannsins, kom fram að efni póstsins væri viðkvæmt ekki síst út frá sjónarhóli fulltrúa annarra ríkja sem sátu fundinn. Afstaða einstakra ríkja til umfjöllunarefnis fundarins væri enn í mótun og NB8-samstarfið skipti Ísland miklu máli og mikilvægt væri að traust ríkti um það sem fram færi á fundum þess. Sagði ráðuneytið að afhending póstsins myndi grafa undan trausti í samskiptum Íslands við önnur ríki.
Einka
Svaraði blaðamaðurinn athugasemdum ráðuneytisins með því að vísa til þess að NB8 væri ekki viðurkennd alþjóðastofnun og Tony Blair væri einkaaðili en ekki opinber embættismaður.
Nefndin óskaði eftir frekari skýringum frá utanríkisráðuneytinu um hvernig efni tölvupóstsins væri viðkvæmt fyrir önnur ríki sem sátu fundinn. Jafnframt var óskað eftir nánari upplýsingum um formlegan grundvöll NB8-samstarfsins og hvort þjóðréttarsamningur lægi því til grundvallar.
Í svari ráðuneytisins kom fram að samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, Nordic-Baltic-Eight eða NB8, væri óformlegur svæðisbundinn samstarfsvettvangur Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna þriggja, Eistlands, Lettlands og Litáens. Meginmarkmið samstarfsins væri að efla samvinnu og skapa vettvang til samstarfs og samráðs ríkjanna á sviði utanríkismála. Afstaða ráðuneytisins í málinu grundvallaðist á því markmiði ákvæðis upplýsingalaga að standa vörð um almannahagsmuni með því að tryggja góð samskipti og gagnkvæmt traust við önnur ríki.
Þótt ákvæðið gerði ekki beinlínis ráð fyrir að íslensk stjórnvöld legðu efnislegt mat á eða gætu sér til um afstöðu eða pólitíska viðkvæmni annarra ríkja, leiddi það af eðli ákvæðisins að leggja yrði mat á hvernig upplýsingarnar horfðu við öðrum ríkjum. Þar sem ekki væri leitað eftir formlegri afstöðu erlendra stjórnvalda við meðferð upplýsingabeiðna þá væri það hlutverk ráðuneytisins að leggja mat á upplýsingarnar út frá diplómatísku sjónarhorni og ráða af eðli og samhengi samskiptanna hvort upplýsingarnar væru þess eðlis að birting þeirra gæti skaðað gagnkvæmt traust eða mikilvæga hagsmuni í samskiptum ríkja.
Gætu erlend ríki ekki treyst því að trúnaði væri haldið um það sem fram færi á lokuðum fundum eða í samtölum fulltrúa á milli, myndi það grafa undan trausti til íslenskra stjórnvalda, sem væri forsenda árangursríkra alþjóðasamskipta.
Sendiherra
Úrskurðarnefnd um upplýsingamál fékk póstinn afhentan og segir hann bera með sér að sendandinn hafi verið þáverandi sendiherra Íslands í Bretlandi, Sturla Sigurjónsson, en eins og kunnugt er tók Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir við sendiherrastöðunni nú í haust.
Nefndin segir póstinn innihalda punkta um það sem fram kom af hálfu Tony Blair á fundi hans og sendiherra NB8-ríkjanna 25. febrúar 2026. Þótt gagn geti nýst við ákvarðanatöku í framtíðinni nægi það að mati nefndarinnar ekki til þess að gagn teljist vinnugagn. Til þess að gagn teljist vinnugagn verði það að vera undirbúningsgagn í reynd. Tölvupósturinn beri ekki með sér að vera hluti af undirbúningi ákvörðunar eða annarra málalykta. Í honum komi fram lýsing á meginatriðum í máli Tony Blair á fundinum. Þar sé ekki að finna upplýsingar um fyrirhugaðar breytingar utanríkisráðuneytisins á verkefnum, athugasemdir ráðuneytisins eða annað sem gæti talist fela í sér undirbúning ákvörðunar, samnings eða annarra lykta máls.
Þar af leiðandi geti pósturinn ekki talist vera vinnugagn og sé að því leyti ekki undanþeginn upplýsingarétti almennings, samkvæmt upplýsingalögum, eins og utanríkisráðuneytið hafi haldið fram.
Traust
Hvað varðar þá röksemd ráðuneytisins að afhending póstsins geti grafið undan gagnkvæmu trausti í samskiptum Íslands við önnur ríki, á vettvangi NB8-samstarfsins, og falli því undir undanþáguákvæði upplýsingalaga, segir nefndin ljóst að pósturinn falli ekki undir ákvæði upplýsingalaga um að lögin nái ekki til gagna sem trúnaður skuli ríkja um samkvæmt þjóðréttarsamningum. Ráðuneytið lýsi enda NB8 sem óformlegu samstarfi og hafi ekki vísað til neinna þjóðréttarsamninga um það.
Nefndin segir hins vegar að þótt Tony Blair sé einkaaðili geymi pósturinn upplýsingar um það sem fór fram á lokuðum fundi Íslands og sjö annarra ríkja, sem þáttur í alþjóðlegu samstarfi þeirra. Skilyrði ákvæðis upplýsingalaga, um að gagn geymi upplýsingar um samskipti Íslands við erlend ríki, fyrir því að hægt sé að synja um aðgang sé því fyrir hendi.
Upplýsingarnar sem fram komi í tölvupóstinum varði alþjóðleg samskipti og eðli frásagnarinnar sé þannig að fallast verði á með utanríkisráðuneytinu að það myndi almennt geta grafið undan trausti í samskiptum þeirra ríkja sem stóðu að fundinum ef pósturinn yrði afhentur á grundvelli reglna um upplýsingarétt almennings. Skipti einnig máli að um sé að ræða frásögn af fundi sem fram fór í febrúar árið 2026 og varði þannig m.a. viðfangsefni sem enn séu til meðferðar.
Fellst úrskurðarnefnd um upplýsingamál því á að utanríkisráðuneytinu hafi verið heimilt, samkvæmt upplýsingalögum, að hafna því að afhenda blaðamanninum tölvupóstinn.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗