Rannsaka grunsamleg dauðsföll sjúklinga – Húsleit gerð hjá 45 ára karlmanni

Þýska lögreglan rannsakar nú röð grunsamlegra dauðsfalla meðal aldraðra og alvarlega veikra sjúklinga í borginni Gelsenkirchen.

Þýska lögreglan rannsakar nú röð grunsamlegra dauðsfalla meðal aldraðra og alvarlega veikra sjúklinga í borginni Gelsenkirchen. Beinist rannsóknin að 45 ára karlmanni sem starfað hefur við umönnun sjúklinga um árabil.

Grunur leikur á að sjúklingar kunni að hafa látist í kjölfar rangrar meðferðar af hálfu mannsins. Rannsókn málsins er á frumstigi. Þýska dagblaðið Bild greindi frá þessu í gær.

Lögregla gerði húsleit á heimili mannsins síðastliðinn föstudag og héldu aðrir lögreglumenn á sama tíma á vinnustað hans. Þar voru sjúkraskrár haldlagðar og verða þær nú teknar til ítarlegrar skoðunar.

Alvarleg atvik á sextán mánaða tímabili

Samkvæmt heimildum Bild hófst rannsóknin í kjölfar ábendingar frá vitni. Maðurinn er sagður hafa mikla reynslu af umönnun sjúklinga, meðal annars þeirra sem þurfa á gjörgæslumeðferð að halda, og hefur starfað hjá fleiri en einum umönnunaraðila.

Frá desember 2024 til apríl 2026 komu ítrekað upp alvarleg bráðatilvik hjá sjúklingum sem voru í umsjá mannsins og létust sumir þeirra.

Rannsókn málsins er þó vandasöm enda voru sjúklingarnir allir alvarlega veikir. Ekki er hægt að útiloka að um sorglegar tilviljanir hafi verið að ræða.

Íhuga að grafa upp lík

Sjúklingarnir sem létust voru jarðsettir án þess að krufning færi fram. Saksóknarar í Essen íhuga nú að láta grafa upp lík þeirra til að varpa ljósi á dánarorsakir.

Rannsakendur leggja áherslu á að enn sé óljóst hvort sjúklingarnir hafi fengið ranga meðferð og, hafi svo verið, hvort um mistök eða ásetning hafi verið að ræða. Meðal þess sem nú er til skoðunar eru lyfin sem maðurinn gaf sjúklingunum.

Fyrirtækið sem maðurinn starfar hjá rekur meðal annars sérstaka umönnunarstofnun fyrir alvarlega veika sjúklinga sem þurfa á stöðugri umönnun að halda allan sólarhringinn.

Ekki kemur fram í frétt Bild hversu mörg dauðsföll eru til rannsóknar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab