„Við erum nú sameinuð í sorginni“

Pólski skipverjinn sem komst lífs af er kominn til fjölskyldu sinnar í Póllandi.

Aleksander Kropiwnicki, sendiráðsstjóri Póllands á Íslandi, segir Íslendinga og Pólverja sameinaða í sorginni eftir sjóslysið á miðvikudagskvöld. Samsett mynd: mbl.is/Eggert/GPG Seafood

Pólski skipverjinn sem komst lífs af þegar Jökull ÞH 299 sökk á miðvikudagskvöld hélt til Póllands í gærkvöldi með aðstoð pólska sendiráðsins á Íslandi og er nú kominn til fjölskyldu sinnar.

Aleksander Kropiwnicki, sendiráðsstjóri Póllands á Íslandi, segir í samtali við mbl.is að starfsfólk ræðismannsdeildar pólska sendiráðsins hafi unnið sleitulaust að málum pólsku skipverjanna tveggja frá því að fregnir bárust af slysinu á miðvikudagskvöld.

Eins og mbl.is greindi frá fyrr í dag hét pólski skipverjinn sem lést Jacek Belina. Hann var fæddur árið 1974 og var frá Ustka í Póllandi. 

Sendiráðið hefur verið í sambandi við fjölskyldu hans.

„Við erum nú sameinuð í sorginni, Íslendingar og Pólverjar,“ segir Aleksander og vottar fjölskyldum íslensku mannanna tveggja sem létust í slysinu einnig innilega samúð sína.

Vildi bara komast heim

Hinn pólski skipverjinn, Pawel Samilo, hefur starfað sem sjómaður á Húsavík í tuttugu ár. Í viðtali við DV í gær sagðist hann hafa misst tvo góða vini sína í slysinu en ætlar sér aftur á sjóinn.

Aleksander segir skipverjann sem komst lífs af hafa dvalið í sendiráðinu í Reykjavík í gær þar sem starfsfólk þess hlúði að honum. Hann hafi verið í tiltölulega góðu ástandi miðað við aðstæður.

Starfsfólk sendiráðsins ók honum síðar út á flugvöll.

„Við gerðum allt sem við gátum til að aðstoða hann og gera honum kleift að fara til Póllands samdægurs,“ segir Aleksander.

„Hann vildi bara komast heim.“

Aðstoða fjölskyldu Jaceks

Aleksander segir starfsfólk sendiráðsins reyna eftir fremsta megni að koma til móts við þarfir fjölskyldu mannsins sem lést. Ýmislegt þurfi að ganga frá í kjölfar slyssins.

Aleksander, sem áður starfaði í sendiráði Póllands í Keníu og gegndi síðar embætti sendiherra í Eþíópíu, hefur reynslu af því að sinna ræðismannsstörfum í kjölfar hörmulegra slysa og kveðst þekkja hversu erfið slík verkefni geta verið.

Vinir og vinnufélagar

Aleksander segir slys sem þessi orðin fátíð og því sé áfallið enn meira.

Hann bendir á að Íslendingar og Pólverjar starfi hlið við hlið í ýmsum atvinnugreinum hér á landi og að þau tengsl hafi fært þjóðirnar nær hvor annarri.

„Þeir eru vinir. Þeir eru vinnufélagar,“ segir Aleksander.

„Jafnvel svo sársaukafull reynsla getur aðeins fært okkur enn nær hvert öðru.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab