Sagðist fá vini og fjölskyldu til að aka sér

Maðurinn byggði meðal annars á því að haldlagning bifreiðarinnar ylli honum miklu óhagræði þar sem hann hefði getað fengið vini og fjölskyldumeð…

Maðurinn sagði að haldlagningin ylli honum gríðarlegu óhagræði þar sem hann hefði getað fengið vini og fjölskyldumeðlimi til að aka sér á milli staða gegn því að hann útvegaði bifreiðina. Ljósmynd/Colourbox

Maður sem sviptur hefur verið ökurétti ævilangt fær ekki bifreið sína afhenta úr vörslu lögreglu en hann er grunaður um að hafa ekið sviptur ökurétti í fimm skipti á innan við þremur vikum í september og október.

Maðurinn byggði meðal annars á því að haldlagning bifreiðarinnar ylli honum miklu óhagræði þar sem hann hefði getað fengið vini og fjölskyldumeðlimi til að aka sér á milli staða. Héraðsdómur Suðurlands taldi frásögn mannsins af því ekki sérlega trúverðuga.

Landsréttur staðfesti í gær úrskurð héraðsdóms þar sem hafnað var kröfu mannsins um að aflétt yrði haldi á bifreiðinni, sem er af gerðinni Skoda Octavia.

Taldi ekki sýnt fram á nauðsyn þess að hafa bifreiðina áfram

Lögreglan á Suðurlandi lagði hald á bifreið mannsins 19. október vegna rannsóknar á meintum umferðarlagabrotum hans.

Samkvæmt málatilbúnaði mannsins var hann ekki staddur í bifreiðinni heldur á gangi þegar lögreglu bar að garði.

Maðurinn taldi ekki hafa verið sýnt fram á nauðsyn þess að lögregla hefði bifreiðina áfram í haldi. Þá hefði lögregla þegar sett breytingarlás á bifreiðina þannig að hann gæti ekki komið henni undan með því að hafa eigendaskipti á henni.

Haldlagningin ylli honum gríðarlegu óhagræði þar sem hann hefði getað fengið vini og fjölskyldumeðlimi til að aka sér á milli staða gegn því að hann útvegaði bifreiðina.

Maðurinn tók fram að krafa hans um afhendingu bifreiðarinnar fæli ekki í sér kröfu um að honum yrði heimilað að aka henni á meðan hann væri sviptur ökurétti.

Grunaður um fimm brot á innan við þremur vikum

Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að samkvæmt lögregluskýrslu hafi maðurinn verið stöðvaður við akstur 17. júlí síðastliðinn. Amfetamín og kókaín munu hafa greinst í blóðsýni hans samkvæmt matsgerð Rannsóknastofu Háskóla Íslands í lyfja- og eiturefnafræði.

Þá er maðurinn grunaður um að hafa ekið sviptur ökurétti 29. september og aftur 7., 8., 18. og 19. október.

Samkvæmt úrskurðinum er um sömu bifreið að ræða í framangreindum tilvikum. Lögregla lagði hald á hana í kjölfar síðasta atviksins.

Ítrekað hlotið fangelsisdóma

Maðurinn á að baki umtalsverðan sakaferil á sviði umferðarlagabrota.

Í úrskurði héraðsdóms er vísað til dóms frá þessu ári þar sem maðurinn var dæmdur í níu mánaða óskilorðsbundið fangelsi og ævilöng ökuréttarsvipting hans áréttuð.

Var hann í því máli sakfelldur fyrir akstur sviptur ökurétti í þremur tilvikum en í einu þeirra ók hann jafnframt undir áhrifum áfengis og ávana- og fíkniefna.

Í dóminum er gerð grein fyrir fyrri sakaferli mannsins. Hefur honum ítrekað verið gerð refsing vegna aksturs undir áhrifum áfengis og aksturs sviptur ökurétti.

Árið 2023 var maðurinn dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbundna, meðal annars fyrir akstur undir áhrifum áfengis og akstur sviptur ökurétti.

Síðar sama ár var hann dæmdur í tíu mánaða fangelsi, þar af sjö mánuði skilorðsbundna, meðal annars fyrir akstur sviptur ökurétti.

Árið 2024 var hann dæmdur í fjórtán mánaða fangelsi fyrir akstur sviptur ökurétti og akstur undir áhrifum áfengis. Með þeim dómi var skilorð síðari dómsins frá árinu 2023 jafnframt dæmt upp.

Maðurinn hafði einnig hlotið átta mánaða og fjögurra mánaða fangelsisdóma á þessu ári áður en hann var dæmdur í fyrrgreint níu mánaða fangelsi.

„Ekki sérlega trúverðug sú frásögn hans“

Héraðsdómur taldi augljóst að kæmi til saksóknar vegna þeirra ætluðu brota sem nú eru til rannsóknar væri heimilt að krefjast þess að bifreið mannsins yrði gerð upptæk samkvæmt ákvæðum umferðarlaga.

Haldlagning bifreiðarinnar bryti að mati dómsins ekki gegn reglum um meðalhóf við beitingu opinbers valds.

„Þá getur hér engu skipt að sóknaraðili kunni að verða fyrir einhverju óhagræði vegna haldlagningarinnar, en sannast sagna er ekki sérlega trúverðug sú frásögn hans að hann fái gjarnan aðra menn til að aka bifreiðinni fyrir sig vegna þess að hann sé sjálfur sviptur ökurétti,“ segir í úrskurði héraðsdóms.

Bifreiðin kann að verða gerð upptæk

Landsréttur vísaði til þess að samkvæmt lögum um meðferð sakamála skuli leggja hald á muni ef þeir kunna að verða gerðir upptækir.

Í 108. gr. umferðarlaga sé annars vegar kveðið á um heimild til upptöku ökutækja vegna tiltekinna umferðarlagabrota og hins vegar skyldu til upptöku að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Með hliðsjón af sakaferli mannsins og þeirri ætluðu háttsemi hans sem er til rannsóknar taldi Landsréttur ljóst að skilyrði umferðarlaga fyrir því að bifreiðin yrði gerð upptæk með dómi kynnu að vera uppfyllt. Var úrskurður Héraðsdóms Suðurlands frá 20. nóvember því staðfestur.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab