Hættir hjá Arsenal eftir mikil vonbrigði

Renée Slegers er hætt sem þjálfari kvennaliðs enska knattspyrnufélagsins Arsenal.

Renée Slegers er hætt hjá Arsenal.

Renée Slegers er hætt hjá Arsenal. AFP/Ben Stansall

Renée Slegers er hætt sem þjálfari kvennaliðs enska knattspyrnufélagsins Arsenal. 

Þetta tilkynnti félagið í dag en Arsenal hefur gengið brösuglega í byrjun tímabilsins. 

Liðið er með 15 stig í sjötta sæti eftir ellefu leiki og hefur einungis unnið þrjá þeirra. 

Slegers, sem er 37 ára Hollendingur, tók við starfinu í janúar 2025 eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari. 

Slegers gerði Arsenal að Evrópumeisturum í fyrsta sinn í sögu félagsins nokkrum mánuðum seinna og skrifaði í kjölfarið undir samning til sumarsins 2029. 

Melissa Clarke-Reed stýrir liðinu í næstu leikjum. 

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab