Akureyri tekur þyrlunni fagnandi

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu þyrluskýlis á Akureyri og að fjórða þyrla Landhelgisgæslunnar verði…

Til stendur að gera flugskýlið upp.

Til stendur að gera flugskýlið upp. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Bæjarstjórn Akureyrarbæjar fagnar ákvörðun ríkisstjórnarinnar um uppbyggingu þyrluskýlis á Akureyri og að fjórða þyrla Landhelgisgæslunnar verði staðsett í bænum. Bæjarstjórn leggur áherslu á að aðstaðan komist í gagnið eins fljótt og unnt er.

Í yfirlýsingu frá bæjarstjórn vegna sjóslyssins þar sem Jökull fórst vottar bæjarstjórn aðstandendum þeirra sem létust innilega samúð og þakkar viðbragðsaðilum fyrir störf þeirra.

„Hugur okkar er hjá fjölskyldum þeirra og öllum sem slysið snertir. Bæjarstjórn þakkar einnig viðbragðsaðilum fyrir það þrekvirki sem þar var unnið,“ segir í yfirlýsingunni.

Komist í gagnið eins fljótt og auðið er

Bæjarstjórn segir ákvörðun ríkisstjórnarinnar, sem kynnt var í dag, mikilvægt skref í þágu aukins öryggis og bættrar viðbragðsgetu á Norður- og Austurlandi.

„Bæjarstjórn mun leggja sitt af mörkum til þess að uppbyggingin geti gengið vel og leggur áherslu á að aðstaðan komist í gagnið eins fljótt og unnt er.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab