Lífeyrisgreiðslur óbreyttar þrátt fyrir netöryggisatvik

„Við höfum í varúðarskyni lokað fyrir hluta rafrænnar þjónustu ráðuneytisins í kjölfar netöryggisatviks,“ segir í yfirlýsingu talsmanns ráðuneyt…

„Við höfum í varúðarskyni lokað fyrir hluta rafrænnar þjónustu ráðuneytisins í kjölfar netöryggisatviks,“ segir í yfirlýsingu talsmanns ráðuneytisins. AFP

Breska atvinnu- og lífeyrisráðuneytið hefur lokað tímabundið fyrir hluta rafrænnar þjónustu sinnar í kjölfar netöryggisatviks. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ráðuneytinu í dag en netárásum og netógnum hefur fjölgað víða um heim.

Ráðuneytið tekur þó fram að reglubundnar greiðslur félagslegra bóta og lífeyris hafi ekki raskast.

Fyrirtæki og stjórnvöld hafa að undanförnu glímt við ýmiss konar tæknibilanir sem á síðustu vikum hafa meðal annars lamað netkerfi tæknifyrirtækisins Microsoft og bandarísku flugmálastjórnarinnar (FAA).

„Við höfum í varúðarskyni lokað fyrir hluta rafrænnar þjónustu ráðuneytisins í kjölfar netöryggisatviks,“ segir í yfirlýsingu talsmanns ráðuneytisins.

„Við vinnum náið með netöryggismiðstöð Bretlands og samhæfingarmiðstöð stjórnvalda í netöryggismálum að því að rannsaka málið og koma þjónustunni aftur í gagnið eins fljótt og auðið er.“

Vara við tilraunum Rússa til skemmdarverka

Breska innanlandsleyniþjónustan MI5 og varnarmálaráðuneyti Bretlands vöruðu í vikunni bresk fyrirtæki, sem sjá Úkraínu fyrir hergögnum, við auknum tilraunum Rússa til skemmdarverka.

Bresk stjórnvöld veittu fyrirtækjunum ráðgjöf um hvernig þau gætu dregið úr hættunni á árásum, greint og tilkynnt um njósnir af hálfu óvina og takmarkað afleiðingar hugsanlegra árása.

Persónuupplýsingum 8,7 milljóna viðskiptavina stolið

Í ágúst var gerð netárás á þrjá breska flugvelli í eigu Manchester Airports Group. Í árásinni var persónuupplýsingum 8,7 milljóna viðskiptavina stolið.

Annað netöryggisatvik í Bretlandi á síðasta ári hafði veruleg áhrif á starfsemi bílaframleiðandans Jaguar Land Rover.

Netárásir hafa einnig raskað starfsemi verslunarkeðjunnar Marks & Spencer, lúxusvöruhússins Harrods og matvöruverslunarkeðjunnar Co-op.

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab