Ásar flytja í Garðabæ

Í dag er starfsemin á fjórum stöðum, í Ármúla, Katrínartúni, Skútuvogi og Askalind.

Svona verður húsnæðið þar sem Ásar hyggjast koma sér fyrir í til framtíðar.

„Það er lykilatriði í áframhaldandi sókn samstæðunnar að laða til okkar og halda í framúrskarandi fólk. Þar skiptir góð vinnuaðstaða miklu máli. Með flutningunum náum við samlegð í húsnæðismálum og sameinumst í glæsilegu og nútímalegu húsnæði sem getur þróast í takt við breytta starfshætti og nýja tækni,“ segir María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása hf., en fyrirtækið hefur gert leigusamning um nýjar höfuðstöðvar í Arnarlandi í Garðabæ.

Með flutningunum sameinast skrifstofustarfsemi samstæðunnar á höfuðborgarsvæðinu undir einu þaki. Í dag er starfsemin á fjórum stöðum, í Ármúla, Katrínartúni, Skútuvogi og Askalind, í samtals um 12.550 fermetrum. Innan Ása eru meðal annars fyrirtækin Síminn, Öryggismiðstöðin og OK.

Skrifstofurými í Arnarlandi verður rúmlega 6.000 fermetrar á fimm hæðum í miðjuturni nýbyggingar á reitnum, auk rýma í kjallara og á jarðhæð hússins. Fasteignafélagið Reykjastræti mun sjá um rekstur fasteignarinnar og ÞG verktakar um verklegar framkvæmdir. Húsnæðið er hannað fyrir sveigjanlega vinnuaðstöðu og nýtist fyrir um 650 starfsmenn, sem gefur svigrúm fyrir áframhaldandi vöxt samstæðunnar, segir í tilkynningu.

Þar segir jafnframt að Ósar – lífæð heilbrigðis hf. hafi samið um leigu á norðurturni byggingarinnar, en félögin munu í sameiningu leigja og reka jarðhæð hússins, þar sem verða m.a. mötuneyti, kaffihús og aðstaða fyrir fundi, fræðslu og viðburði.

Áætlað er að húsnæðið verði afhent í tveimur áföngum að vori og sumri 2029. Leigusamningur er til 20 ára með framlengingarheimildum. Núverandi leigusamningar félaga í samstæðunni renna út í aðdraganda þess að nýjar höfuðstöðvar verða afhentar.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab