Starfsmaður á hárgreiðslustofu bjargaði málunum

Tilkynnt var um eld í bíl í Lágmúla. Hringt var á slökkviliðið en áður en það kom á staðinn hafði vegfarandi slökkt eldinn með hjálp slökkvitæki…

Innlent | mbl | 27.11.2026 | 16:39

Atvikið átti sér stað við Lágmúla nú síðdegis.

Atvikið átti sér stað við Lágmúla nú síðdegis. mbl.is/sisi

Tilkynnt var um eld í bíl í Lágmúla fyrir stundu. Hringt var á slökkviliðið en áður en það kom á staðinn hafði vaskur borgari slökkt eldinn með hjálp slökkvitækis. 

Að sögn Jóhanns Viggó Jónssonar varðstjóra hjá slökkviliðinu var eldurinn lítill. Hann var staðbundinn og kom upp undir olíupönnu. 

Ökumaðurinn var að bakka í stæði þegar honum var bent á að eldur væri undir bílnum. Starfsmaður úr hárgreiðslustofu kom þá askvaðandi með slökkvitæki og slökkti eldinn.  

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab