Sérsveitin í útkalli
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út nú fyrir skemmstu.
Innlent | mbl | 27.11.2026 | 16:41
Sérsveitin er í útkalli. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út nú fyrir skemmstu og liðsinnir lögreglu í aðgerð á höfuðborgarsvæðinu.
Þetta staðfestir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, í samtali við mbl.is.
Helena Rós vill þó ekki gefa upp hvers eðlis útkallið og vísar að öðru leyti á lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt sjónarvotti sást til sjúkrabíla og sérsveitarbíla aka upp Ártúnsbrekkuna nú á fimmta tímanum síðdegis.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗