„Hraðinn er orðinn miklu meiri“
Öryggi íslenskra innviða, sem útsettir gætu verið fyrir slíkum tölvuárásum, var borið undir Eyjólf Ármannsson innviðaráðherra að loknum ríkisstj…
Hraði tölvuárása hefur aukist til muna með tilkomu gervigreindar að sögn Eyjólfs Ármanssonar innviðaráðherra.
Öryggi íslenskra innviða, sem útsettir gætu verið fyrir slíkum tölvuárásum, var borið undir hann að loknum ríkisstjórnarfundi í dag.
Hann segir stjórnvöld hafa eflt greiningargetu og bætt búnað netöryggissveitarinnar til að koma auga á og bregðast við slíkum árásum.
Frumvarp sem lýtur að netöryggisráði og samhæfingu Fjarskiptastofu
„Ég var nú með frumvarp í þessari viku sem lýtur að netöryggisráði og samhæfingu Fjarskiptastofu hvað lýtur að netöryggi, þannig að við fylgjumst vel með þessu og höfum verið að efla þessa getu,“ segir hann í samtali við mbl.is.
Þá segir hann viðbúnað vegna netógna áfram á óvissustigi. „Það eru skilaboð í því að hvetja þá rekstraraðila mikilvægra innviða til að vera á tánum og fara í að greina sínar netvarnir og svo framvegis,“ segir hann.
Fylgjast grannt með stöðu mála
Eyjólfur segir stjórnvöld fylgjast grannt með stöðu mála og að stofnanaumgjörðin í netöryggismálum sé orðin prýðileg. Tilkoma gervigreindar hafi hins vegar breytt eðli þeirra ógna sem bregðast þurfi við.
„Ég hef verið að mæla fyrir frumvörpum hvað þetta varðar og við fylgjumst vel með því sem er að gerast. Það sem er að gerast varðandi netárásir núna er að þetta eru gervigreindarárásir þannig að hraðinn er orðinn miklu meiri og það þarf náttúrulega að bregðast við því,“ segir hann.
„Það er það sem er nýtt í þessu, það eru öflugri árásirnar. Það er meiri geta til að finna veikleikann í kerfunum og það er það sem þarf að skoða sérstaklega.“
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗