Byggt á Akureyri meðan þyrlu er leitað

Ríkisstjórnin hyggst flýta því að þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fái fjórðu þyrluna, en henni verður komið fyrir á Akureyri. Dómsmálaráðherra já…

Ríkisstjórnin hyggst flýta því að þyrlusveit Landhelgisgæslunnar fái fjórðu þyrluna, en henni verður komið fyrir á Akureyri. Dómsmálaráðherra játar að tími geti tekið að finna þyrlu, en ekki verði beðið með að koma upp aðstöðu fyrir hana.

Byggja þarf flugskýli og ýmsa aðstöðu aðra til þess að gera út þyrlu fyrir norðan og ástæðulaust að bíða með þann undirbúning, sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra í viðtaii við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi í hádeginu.

Breyting á fjárlagafrumvarpi

Kristrún Frostadóttir segir að ríkisstjórnin muni senda beiðni til fjárlaganefndar fyrir 2. umræðu fjárlagafrumvarps til þess að hefja undirbúning staðsetningar þyrlu á Akureyri.

„Þetta er eitthvað sem við getum hafið strax. Við vitum að það þarf á þessu að halda,“ segir Kristrún í samtali við mbl.is. Reynt verði að leigja þyrlu, en kaup taki talsvert lengri tíma.

Þorbjörg Sigríður segir að ný þyrla kalli á nýja áhöfn, en alls muni aukinn rekstrarkostnaður verða um 1-1,5 milljarð króna á ári.

Óljós innviðaskuld

Þorbjörg svaraði hins vegar ekki hvort frekari fjárfestinga hjá Landshelgisgæslunnar væri von, en forsætisráðherra sagði á blaðamannafundi í gær, að innviðaskuld væri hjá Landhelgisgæslunni. Georg Lárusson, forstjóri hennar, sagði á sama fundi að Gæslan væri raunar ágætlega tækjum búin, það væri frekar að fjármuni vantaði til þess að nýta þau til fullnustu.

Dómsmálaráðherra sagði hins vegar að hugsanleg uppbygging hjá Landhelgisgæslunni gæti tengst auknum varnarviðbúnaði, sem ráðgerður hafi verið, en að hún geti vel falist í auknu öryggi borgaranna samhliða því.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab