Hætta við málsókn gegn Carragher
Enska knattspyrnufélagið Aston Villa hefur fallið frá hótun sinni um málsókn gegn Jamie Carragher, sparkspekingi Sky Sports og fyrrverandi leikmanni Liverpool.
Villa hafði á föstudag tilkynnt að félagið hygðist höfða mál gegn Carragher vegna ummæla sem hann lét falla um félagið í hlaðvarpinu Stick to Football.
Þar stakk Carragher upp á Unai Emery, stjóra Aston Villa, sem mögulegum eftirmanni Michael Carrick hjá Manchester United, yrði sá síðarnefndi rekinn.
Hann sagði einnig stuðningsmönnum Villa að halda kjafti eftir gagnrýni þeirra á ummælin.
Carragher baðst afsökunar á laugardaginn og sagði orðalag sitt hafa verið „klaufalegt og rangt“. Hann bætti við að ummælin hefðu verið sett fram í hálfkæringi.
Villa hóf aldrei formlega málsókn gegn Carragher en hefur nú fallið frá hótuninni í kjölfar afsökunarbeiðni hans.
Carragher dró ummæli sín til baka í færslu á samfélagsmiðlum á laugardaginn.
„Ég vil biðjast afsökunar á Aston Villa, eigendum félagsins og stuðningsmönnum þess. Orðalag mitt í vikunni var klaufalegt og rangt.
Ég get fullvissað stuðningsmenn Villa um að þetta hafi verið sagt í hálfkæringi en ég skil að það hafi ekki komið þannig út. Ég biðst því afsökunar,“ skrifaði Carragher.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗