Pochettino sagður hafa heillað leikmenn United með þessum hlutum

Mauricio Pochettino, nýr knattspyrnustjóri Manchester United, er sagður hafa unnið leikmenn liðsins á sitt band þrátt fyrir að hafa aðeins verið…

Mauricio Pochettino, nýr knattspyrnustjóri Manchester United, er sagður hafa unnið leikmenn liðsins á sitt band þrátt fyrir að hafa aðeins verið rúma viku í starfi.

Samkvæmt The Sun eru leikmenn United hrifnir af persónutöfrum Argentínumannsins og kunna vel að meta þær miklu kröfur sem hann gerir til þeirra á æfingum.

Michael Carrick, forveri Pochettino, var vinsæll meðal leikmanna en þeim fannst veikleikar hans koma betur í ljós með auknu leikjaálagi á tímabilinu.

United hefur enn ekki unnið leik undir stjórn Pochettino en liðið tapaði 4-0 gegn Liverpool áður en það gerði 2-2 jafntefli við Sporting í Meistaradeildinni.

Gagnrýni Pochettino á rauða spjaldið sem Leny Yoro fékk gegn Liverpool féll í góðan jarðveg innan félagsins en spjaldið var síðar dregið til baka.

Pochettino hefur ekki gefið leikmönnum sínum frí frá æfingum síðan hann tók við liðinu vegna mikils leikjaálags.

United tekur á móti Brentford á Old Trafford á morgun í fyrsta heimaleiknum undir stjórn Pochettino.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab