Kona þarf að borga manninum sem ökklabraut hana 300 þúsund krónur
Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfum konu um miskabætur frá manni sem keyrði hana niður. Maðurinn var að færa til farsíma og sýndi ekki næ…
Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 27. nóvember 2026 16:30
Keyrt var á konuna við gatnamót Vesturgötu og Hólmgarðs í Reykjanesbæ. Skjáskot/Ja.is
Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfum konu um miskabætur frá manni sem keyrði hana niður. Maðurinn var að færa til farsíma og sýndi ekki nægilega aðgæslu.
Atvikið átti sér stað þann 16. nóvember árið 2025 við gatnamót Vesturgötu og Hólmgarðs í Reykjanesbæ. Þar sem ökumaður Toyota Land Cruiser bifreiðar sýndi ekki nægilega aðgæslu við aksturinn og keyrði á konu sem var að ganga yfir akbraut. Hafði maðurinn verið að færa til farsímann sinn.
Konan skall í jörðina og slasaðist. Ökklabrotnaði hún á vinstri fæti, fékk mar á enni og blóðgaðist í nefi.
Var maðurinn ákærður fyrir þetta og játaði brot sitt án undandráttar. Hann hafnaði hins vegar kröfu konunnar um 2 milljón króna miskabætur. En ágreiningurinn snerist um hvort að háttsemi ökumannsins teldist einfalt gáleysi eða stórfellt.
Taldi bílinn vera að stoppa
Maðurinn sagðist ekki hafa séð konuna og hafi ekki verið að keyra mjög hratt, á um 5 km/klst hraða. Hafnaði hann því að hafa verið „í símanum“, aðeins verið að færa hann til. Konan hafði séð bílinn en talið að hann væri að hægja á sér og stoppa. Annað fólk hefði einnig verið að fara yfir gangbrautina.
„Ekkert bendir til að of miklum hraða verði um kennt. Þá hafi stefndi verið allsgáður í umrætt sinn, og ekki liggur annað fyrir en að hann hafi verið andlega og líkamlega fær um að aka bifreiðinni. Stefndi sýndi af sér gáleysi með aðgæsluleysi, sérstaklega gagnvart gangandi vegfaranda er leiddi til líkamsmeiðinga stefnanda, segir í niðurstöðu dómsins.
Ekki þyki hægt að fallast á það að háttsemi hans hafi verið svo verulega ámælisverð að hún verði metin stórfelld í skilningi laganna. Var hann því sýknaður af kröfu konunnar en hún þarf að greiða 310 þúsund krónur í málskostnað.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗