Englendingar minnast Ingvars
Enskir fjölmiðlar hafa fjallað um andlát knattspyrnumarkvarðarins Ingvars Jónssonar, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 25. nóvember eftir …
Enskir fjölmiðlar hafa fjallað um andlát knattspyrnumarkvarðarins Ingvars Jónssonar, sem lést á Landspítalanum miðvikudaginn 25. nóvember eftir baráttu við illkynja krabbamein.
Ingvar greindist með krabbamein í maí síðastliðnum og hóf skömmu síðar lyfjameðferð. Hann lést á miðvikudaginn, 37 ára að aldri.
Ingvar lék alls átta A-landsleiki fyrir Íslands hönd og var hluti af lokahópi íslenska landsliðsins á Evrópumótinu í Frakklandi sumarið 2016.
Bresku stórmiðlarnir The Sun og The Mirror eru meðal þeirra sem hafa fjallað um andlát Ingvars. Í umfjöllun sinni rifja miðlarnir meðal annars upp að hann hafi verið í íslenska landsliðshópnum sem vann England í eftirminnilegum 2:1-sigri í 16-liða úrslitum EM 2016.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗