Slá allt að 20 milljónir af íbúðaverði á svörtum föstudegi

„Ég hef ekki séð svona tilboð áður,“ segir Jón Guðni Sandholt fasteignasali.

Í tilefni af svörtum föstudegi fást tvær fjölskylduíbúðir við Áshamar í Hafnarfirði með 20 prósenta afslætti út vikuna. Samsett mynd/Helgafell fasteignasala

Tvær nýjar fjölskylduíbúðir við Áshamar 1–7 í Hafnarfirði eru nú til sölu með 20 prósenta afslætti í tilefni af svörtum föstudegi.

Jón Guðni Sandholt, fasteignasali hjá Helgafelli, segir í samtali við Smartland að 18 til 20 milljónir króna hafi verið slegnar af áður auglýstu verði.

„Ég hef ekki séð svona tilboð áður,“ segir hann um svo mikinn afslátt af nýjum íbúðum.

Íbúðirnar eru 4–5 herbergja og meðal þeirra stærri í húsinu. Að sögn Jóns Guðna hafa minni íbúðir selst en þær stærri setið eftir. Til samanburðar nefnir hann að 95 fermetra íbúð í húsinu hafi selst á 74,9 milljónir króna.

„Þá ertu með 50 fermetrum stærri íbúð næstum því á sama verði,“ segir hann um aðra íbúðina sem nú er á tilboði. Verðið hafi verið hagstætt fyrir lækkunina og nú bjóðist kaupendum „fáránlega gott verð“.

Tilboðið stendur út vikuna. Jón Guðni býst við að það verði ekki lengur í gildi á mánudag en segir einn dag til eða frá skipta litlu. Kaupendur geta gert fyrirvara um fjármögnun en kaupin mega þó ekki vera háð sölu annarrar eignar.

Nýja fjölbýlishúsið Áshamar 1–7 í Hafnarfirði. Skjáskot/ashamar1-7.is

Þurfa að leita til foreldra sinna

Jón Guðni segir að sala á nýbyggingum hafi gengið hægt frá því að vextir hækkuðu. Eftir breytingar á útlánareglum þurfi fólk að vera með „svo rosalega há laun“ til að standast greiðslumat.

Samkvæmt reglum Seðlabankans má greiðslubyrði íbúðalána almennt nema allt að 35 prósentum af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum. Hjá fyrstu kaupendum er hámarkið 40 prósent. Við mat á greiðslubyrði verðtryggðra lána er miðað við að hámarki 25 ára lánstíma. Mánaðargreiðslan reiknast því hærri en ef greiðslunum væri dreift á 40 ár.

Jón Guðni nefnir dæmi um fólk sem hafi boðið 59 til 60 milljónir króna í tveggja herbergja íbúð í sama verkefni en fallið á greiðslumati þótt það hefði að hans mati vel ráðið við afborganirnar.

„Þau þurfa að fá foreldra til þess að hjálpa sér, sem er bara galið,“ bendir hann á að lokum.

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab