Fjármögnun þyrlunnar „fullkomlega möguleg“
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að flýta því að bæta fjórðu þyrlunni við flota Landhelgisgæslunnar.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir það fullkomlega mögulegt að fjármagna fjölgun þyrlna Landhelgisgæslunnar innan næstu fjármálaáætlunar.
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að flýta því að bæta fjórðu þyrlunni við flota Landhelgisgæslunnar.
Jafnframt var ákveðið að hefja uppbyggingu flugskýlis á Akureyri á næsta ári.
Fullkomlega mögulegt
Hvernig mun þetta rýmast innan næstu fjármálaáætlunar?
„Þetta er nú fullkomlega mögulegt og hefur alltaf verið gert ráð fyrir. Ríkisstjórnin hefur rætt um það að þetta yrði niðurstaðan og það er raunar þannig að á þessum ríkisstjórnarfundi var tekin ákvörðun um að flýta ferlinu,“ segir hann í samtali við mbl.is að loknum ríkisstjórnarfundi.
Hann segir að uppbygging nauðsynlegrar aðstöðu á Akureyri til að taka á móti nýrri þyrlu muni hafa í för með sér einskiptiskostnað.
„Svo gerum við ráð fyrir því að kostnaður vegna hennar verði inni í fjármálaáætlun sem kynnt verður í febrúar,“ segir hann jafnframt.
Mikil eftirspurn eftir þyrlum
Daði segir of snemmt að segja til um hvenær fjórða þyrlan kemur til landsins.
„Ástandið í heiminum hefur verið þannig að eftirspurn eftir þyrlum hefur verið mjög mikil,“ segir hann.
„Við vonumst til þess að geta gert þetta hratt en það verður aðeins að koma í ljós hvað er til af þyrlum sem henta okkur.“
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗