Ingimar Jónsson forstjóri Pennans: Tíu mánuðir frá stöplum til opnunar

Tekjumódelið fyrir streymisveitur hljóðbóka er hannað fyrir einn aðila, ekki höfunda og hefðbundna útgefendur. Penninn hefur fleiri stoðir undir…

Tekjumódelið fyrir streymisveitur hljóðbóka er hannað fyrir einn aðila, ekki höfunda og hefðbundna útgefendur. Penninn hefur fleiri stoðir undir rekstrinum en einungis bóksölu. Fyrir tækið er með virt og þekkt húsgagnamerki og vandaða gjafavöru að auki. Þá er Penninn með net bókabúða hringinn í kringum landið, þótt segja megi að Austurland sé þar út undan. Nýverið reisti Penninn og opnaði glæsilega verslunar og þjónustumiðstöð í Vík í Mýrdal. Ingimar Jónsson, forstjóri Pennans, er gestur Ólafs Arnarsonar í hlaðvarpi Eyjunnar.

Hægt er að hlusta á brot úr þættinum hér:

„En þetta er kannski svolítið sorglegt líka í þeirri stöðu, í ljósi þess sko að bæði útgefendur og tala ekki um rithöfundar eru að kvarta yfir því hvað þeir fái út úr þessum upplestri raunverulega.“

Já, þetta virðist vera vandamálið við þessar tæknibreytingar sem eru að verða. Miðlunin er að breytast og, en tekjumódelið sem var með föstum skorðum til dæmis og er með föstum skorðum þegar kemur að hinni prentuðu bók. Það er bara varla til staðar.

„Þetta er bara fyrir einn aðila. Þetta er bara stílað upp á það að viðkomandi aðili hafi eitthvað út úr þessu en aðrir ekki.“

Já, já. En þið eruð með fleiri stoðir en bækur og ritföng. Þú nefndir húsgögn, gjafavara. Þið eruð nýlega búnir að flytja skrifstofurnar ykkar í turninn hérna á Smáratorgi og húsgagnaverslunin, hún er komin í Askalind 2. Ég var að fara yfir vefsíðu Pennans og svona skoða, undirbúa mig áður en þú kæmi til mín og ég sé að þið eruð með mikið úrval og mjög breiða línu í, til dæmis húsgögnum og alls ekki bara einskorðað við skrifstofuhúsgögn.

„Nei, en það er nú svona aðallinn hjá okkur og við höfum náttúrlega verið mjög lengi með þessa birgja eins og Herman Miller í skrifstofustólum, bara Aeron og Mirra. Og svo erum við auðvitað með fyrirtæki eins og Kinnarps og fleiri og nú við erum að selja þessa fundarklefa, Framery fundarklefa. Það hefur góð sala í þeim á undanförnum árum og þetta hefur bara gengið mjög vel á undanförnum árum hjá okkur, þessi húsgagnadeild, með þetta svið.“

Já, og þið eruð með frægar vörur líka, líka þegar kemur að heimilishúsgögnum.

„Já, það er Vitra og þar eru þessi ýmsu húsgögn sem eru raunverulega í grunninn bandarísk en Rolf Fehlbaum, stofnandi Vitra, hann samdi við Vitra, við Eames-hjónin, 1957 um dreifingu á þessu í Evrópu. Það er samningur sem hefur haldið. En það er raunverulega Herman Miller sem er dreifandi að þessum vörum í Bandaríkjunum og um allan heim.

Svo tengist þetta líka HAY, sem eru bæði gjafavara, og mjög fín húsgögn líka, því að Herman Miller á orðið 70% í HAY í Danmörku og þess vegna erum við með það líka. Við erum líka með Muuto og, og Knoll, komin með þessi fyrirtæki og þetta er allt í gegnum Herman Miller.“

Einmitt, og maður tekur eftir því þegar maður kemur inn í Eymundsson að bækurnar eru náttúrlega áberandi, en gjafavaran, hún er orðin áberandi líka.

„Já, já. Gengur bara vel.“

Já, og þið eruð með verslanir að segja mál hringinn í kringum landið.

„Já, það er Akranes, Ísafjörður, Akureyri, Húsavík, Vík í Mýrdal núna, Vestmannaeyjar, Selfoss og Keflavík. Það vantar bara Austfirðina inn í.“

Já, og svo eruð þið í flugstöðinni.

„Já, einmitt.“

Var það ekki bara á þessu ári sem þið opnuðuð stóra og glæsilega verslun í Vík?

„Jú, það var bara í vor. Það var bara mjög skemmtilegt verkefni og er. Og við fengum þarna lóð og það voru nú einhverjir 14, 15 aðilar sem sóttu um hana en við vorum með svona concept sem þeim fannst áhugavert, sem sagt verslun á vegum okkar, Pennans. Og síðan er þarna Mýrdalshreppur með ráðhús, 250 fermetra ráðhús og er apótekarinn með lyfjaverslun. Hann hafði vantað í Vík. Og síðan opnaði hjá okkur í haust Fish and chips staður þarna inni í 40 fermetra rými sem var eftir. Það er fólk frá Húsavík sem hefur rekið Fish and chips við Mývatn og gengið alveg feiknarlega vel og mjög góð vara.“

Þannig að þarna er komin svona ákveðin miðstöð, svona verslunar- og þjónustumiðstöð og hvernig er það, er ekki talsverð fjárfesting, tekur ekki tíma að byggja upp svona, svona á nýjum stað?

„Það er nú svolítið skemmtilegt að segja frá þessu að við fengum hús sem sagt í fyrrahaust frá Eistlandi. Við höfðum nú byrjað 10. júní og tókum sökkla, byrjuðum á sökklunum þá. Það var steypt plata þarna í lok ágúst ef ég man rétt og 10. september vorum við búin að malbika fyrir utan. Og síðan kemur húsið og það er reist og ég á mynd frá 25. október þar sem bara límtrésgrindin er komin upp. En 10. desember búið að loka húsinu?

Mýrdalshreppur flutti inn í byrjun apríl og Penninn opnaði þarna í seinni partinn í apríl. Þannig að við vorum tíu mánuði, því við tókum sökklana og þar til starfsemin opnaði. Þannig að þetta gekk bara afskaplega vel sko.“

Voruð það þið sem reistuð húsið?

„Já. Við erum með lítið félag sem fór í þetta verkefni. Eigum svona fasteignafélag sem er í kringum eignir fyrir Pennann. Við bara vorum með, menn með okkur sem byggingarstjóra og svona sem sáu um þetta verkefni ásamt okkur.“

Hægt er að hlusta á hlaðvarpið í heild sinni hér:

Einnig er hægt að hlusta á Spotify.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab